Íslandsbanki endurgreiðir vexti til 20.000 viðskiptavina 21. febrúar 2013 10:23 Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka.
Um 20.000 skilvísir viðskiptavinir Íslandsbanka munu mánudaginn 25. febrúar næstkomandi fá endurgreidda 30% af þeim vöxtum sem þeir greiddu af húsnæðislánum og öllum almennum skuldabréfalánum hjá bankanum á síðasta ári. Í tilkynningu segir að undanskilin eru þau húsnæðislán sem verða endurreiknuð í samræmi við dóma Hæstaréttar um fullnaðarkvittanir. Heildarupphæð endurgreiðslunnar er um 2,5 milljarðar króna en að meðaltali mun hver viðskiptavinur fá endurgreiddar um 120.000 krónur. Endurgreiðslan getur að hámarki numið 500.000 krónum á hvern viðskiptavin. Upphæðin verður lögð inn á sparnaðarreikning í nafni viðskiptavinar, Vaxtaþrep 30 dagar. Reikningurinn er bundinn og ber stighækkandi vexti eftir fjárhæð innstæðu. Viðskiptavinir geta tekið út af reikningnum á einfaldan hátt í gegnum Netbanka Íslandsbanka með 30 daga fyrirvara. Vextir á reikningnum eru hærri en á almennum óbundnum innlánsreikningum og eru greiddir út mánaðarlega inn á ráðstöfunarreikning viðskiptavinar. Því er hægt að ráðstafa þeim að vild í lok hvers mánaðar án þess að hreyfa höfuðstólinn. Með því að greiða upphæðina inn á Vaxtaþrep 30 daga vill Íslandsbanki leggja grunn að sparnaði viðskiptavina sinna en hafa ber i huga að í sumum tilvikum getur besti sparnaðurinn falist í að greiða niður skuldir sem bera háa vexti. Viðskiptavinir eru hvattir til að panta sér viðtal hjá ráðgjafa í útibúum Íslandsbanka til að fara yfir hvaða sparnaðarleiðir henta þeim best, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira