Ávöxtun lífeyrissjóðs verzlunarmanna nam 13% Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. febrúar 2013 13:26 Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna.
Ávöxtun eigna lífeyrissjóðs verzlunarmanna var 13,4% á síðasta ári sem svarar til 8,5% hreinnar raunávöxtunar. Hrein raunávöxtun síðast liðin 10 ár nam 3,9%. Fjárfestingartækifærum fjölgaði á árinu og innlendur hlutabréfamarkaður efldist. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum vegna uppgjörs fyrir síðasta ár. Gjaldeyrishöft hamla þó enn nokkuð uppbyggingu og setja mark sitt á starfsemi sjóða eins og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.Eignir yfir 400 milljarðar Í lok ársins voru eignir um 402 milljarðar samanborið við 345 milljarða árið áður. Eignir jukust þannig um rúma 56 milljarða á árinu. Eignir sjóðsins dreifast þannig að um 28% af eignum sjóðsins er í dreifðu safni erlendra verðbréfa, 29% í innlendum ríkistryggðum skuldabréfum, 10% í safni sjóðfélagalána og 9% í bankainnstæðum. Innlend hlutabréfaeign jókst nokkuð á árinu og nemur nú um 12% af eignum sjóðsins. Önnur skuldabréf eru samtals 12% af eignum. Tryggingafræðileg staða lífeyrissjóðsins hefur batnað undanfarin ár, segir í tilkynningu frá sjóðnum. Um nýliðin áramót var hún metin -0,4% samanborið við -2,3% árið 2011 og -3,4% árið 2010. Staða sjóðsins í þessu tilliti kallar því ekki á breytingar á lífeyrisgreiðslum.Greiðslur til sjóðfélaga um átta milljarðar á ári „Meginhlutverk Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er að greiða lífeyri til sjóðfélaga á grundvelli réttinda sem þeir ávinna sér með greiðslu iðgjalda til sjóðsins. Á liðnu ári greiddu rúmlega 48 þúsund sjóðfélagar til sjóðsins en alls eiga um 147 þúsund manns réttindi hjá sjóðnum. Mikill meirihluti sjóðfélaga er enn að byggja upp réttindi sín til lífeyris. Því eru inngreidd iðgjöld enn talsvert hærri fjárhæð en útgreiddur lífeyrir. Árið 2012 greiddi lífeyrissjóðurinn um átta milljarða í lífeyri til rúmlega ellefu þúsund sjóðfélaga. Lífeyrisgreiðslur hækkuðu um nær 15% frá fyrra ári. Á sama tíma námu greidd iðgjöld til sjóðsins nær 18 milljörðum sem er heldur hærri fjárhæð en árið áður," segir í tilkynningu frá sjóðnum.
Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Happy Hydrate seldi fyrir 302 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Sjá meira