Óvissa ríkir um gengislán upp á milljarða þj og khn skrifa 31. maí 2013 07:00 Dómur Hæstaréttar hefur mikið fordæmisgildi Fréttablaðið/Pjetur
Óvissa ríkir um afdrif þúsunda skammtímalána að verðmæti milljarða króna eftir dóm Hæstaréttar í gær, skv. áliti lögmanns. Dómurinn kvað á um að óheimilt sé að reikna seðlabankavexti afturvirkt á skammtímalán, þar á meðal bílalán, eftir að gengistryggð lán voru dæmd ólögleg árið 2010. Málið í gær fjallaði um 7 ára lánasamning upp á 5 milljónir króna sem SP fjármögnun, sem nú er hluti af Landsbankanum, gerði við Plastiðjuna um kaup á bifreið. Einar Hugi Bjarnason, lögmaður Plastiðjunnar, telur ljóst að fordæmisgildi málsins sé mikið. „Það tekur bæði til þúsunda lánasamninga og til fjármálafyrirtækjanna í heild sinni. Hér var ekki fjallað um lánsformið sem slíkt, svo málið hefur afar víðtæka skírskotun. Þeir fjárhagslegu hagsmunir sem hér er um að tefla hlaupa á milljörðum króna.“ Einar Hugi hvetur fólk til að kanna réttarstöðu sína. „Auðvitað ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að fjármálafyrirtækin hefjist handa við að endurreikna þessi skammtímalán.“ Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, sagði að nú væri verið að skoða afleiðingar dómsins. „Við þurfum að gera þetta mjög vandlega því það er mikið undir í þessu máli fyrir okkur og mikilvægt að við vöndum okkur við úrlausn þess,“ sagði Kristján. Hann vonast til þess að málin skýrist frekar í dag.
Mest lesið „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Fleiri fréttir „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Sjá meira