Endurskipulagningu Skipta verði lokið í lok júní 31. maí 2013 11:24
Stefnt er að því að endurskipulagningu Skipta hf. verði lokið í lok júní. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kaupahallarinnar. Fram kom í tilkynningu Skipta hf. dags. 30. apríl 2013 að Arion banki hf. og eigendur skuldabréfaflokksins SIMI 06 01 hafa gerst aðilar að samningi um endurskipulagninguna. Skipti hf. hefur að undanförnu unnið að því að leiða fjárhagslega endurskipulagningu félagsins til lykta, sem felst einkum í því að tryggja að ný fjármögnun félagsins liggi fyrir í undirrituðu eða samþykktu horfi eigi síðar en 30. júní 2013. Í hinni nýju tilkynningu segir að vonir standi til þess að endurskipulagningunni ljúki þann 20. júní nk. með því að öll hlutabréf í félaginu verði afhent Arion banka hf. og eigendum skuldabréfaflokksins SIMI 06 01. Á sama tíma munu eigendur skuldabréfaflokksins SIMI 06 01 afhenda skuldabréf sín í gegnum reikningsstofnanir sínar til Skipta hf., og reikna má með því að skuldabréfin verði afskráð úr kauphöll í framhaldinu. Í samningnum um endurskipulagninguna skuldbinda eigendur skuldabréfaflokksins SIMI 06 01 til þess að framselja ekki skuldabréf sín án heimildar Skipta hf. Nýverið hafa félaginu borist óskir um að það heimili framsal skuldabréfa og hefur félagið því ákveðið að setja verklagsreglur um veitingu slíks samþykkis.Verklagsreglur Verklagsreglurnar fela það í sér að seljendur og kaupendur skuldabréfa undirrita beiðnir um framsal skuldabréfa og koma þeim til þeirra fjármálafyrirtækja er aðstoða þau við viðskiptin, en form af slíkum beiðnum má nálgast hjá félaginu. Samkvæmt beiðnunum er gert ráð fyrir að greiðsla samkvæmt samningnum að fjárhæð kr. 2.000.000, sem verður greidd til hvers eiganda skuldabréfa miðað við skráða eigendur þann 27. mars sl., skuli greidd til seljanda, en ekki kaupanda. Enn fremur er gert ráð fyrir að kaupandi skuldbindi sig til þess að framselja ekki skuldabréfin án samþykkis félagsins. Þá er gert ráð fyrir að réttindi seljanda samkvæmt samningnum séu framseld til kaupanda og að kaupandi undirgangist skuldbindingar seljanda samkvæmt samningnum. Nauðsynlegt er að félagið hafi ráðrúm til þess að skipuleggja efndadag samningsins og mun félagið því ekki veita samþykki um framsal skuldabréfanna eftir 13. júní 2013. Félagið áréttar ánægju sína með fjárhagslega endurskipulagningu skulda þess og vonast til þess að áætlanir um lok hennar gangi eftir eins og gengið er út frá. Skipti hf. horfir því áfram björtum augum fram á við og halda félagið og dótturfélögin áfram öflugri uppbyggingu á fjarskiptainnviðum, fjarskiptakerfum og þjónustu við viðskiptavini um land allt.
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Heiðrún Lind í stjórn Sýnar Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira