Fréttaskýring: Horft til breytts eignarhalds á fjármálakerfinu Magnús Halldórsson skrifar 13. febrúar 2013 21:54 Endurreistu bankarnir þrír, gætu mögulega skipt um eigendur í framtíðinni, og lífeyrissjóðirnir eignast í þeim stóra eignarhluti, ásamt öðrum fagfjárfestum.
Hugmyndir hafa verið reifaðar við slitastjórnir Glitnis og Kaupþings, og síðan íslensk stjórnvöld og bankaráð Landsbankans, um að lífeyrissjóðir, og fleiri fagfjárfestar, eignist stóran hluta íslenska fjármálakerfisins. Er ekki síst horft til þessa þar sem augljóst er að eignarhald á endurreistu bönkunum þremur, Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankanum, er eins og sakir standa ekki með þeim hætti eins og æskilegt þykir til framtíðar litið. Kröfuhafar Glitnis eiga 95 prósent hlut í Íslandsbanka og íslenska ríkið 5 prósent. Kröfuhafar Kaupþings eiga 87 prósent hlut í Arion banka og íslenska ríkið 13 prósent, og hjá Landsbankanum á íslenska ríkið ríflega 80 prósent og kröfuhafar gamla Landsbankans afganginn. Auk þess er fyrir hendi gjaldeyrisskuld Landsbankans gagnvart þrotabúi gamla bankans upp á um 300 milljarða króna.Greitt með hluta erlendra eigna Hugmyndirnar sem nú eru ræddar, og hafa verið það undanfarna mánuði, snúast í stórum dráttum, samkvæmt heimildum fréttastofu, um að lífeyrissjóðirnir íslensku eignist stóran hlut í hinum endurreistu bönkum, einum eða fleirum, og greiði fyrir það með erlendum eignum, í það minnsta að einhverju leyti. Eins og fram kom í fréttum í dag, eftir að DV greindi frá því í morgun að kaup á hlut í Íslandsbanka væru nú til umræðu, hefur Framtakssjóður Íslands meðal annars viðrað hugmyndir um að sjóðurinn komi að kaupum á hlut í bönkunum, ásamt fleiri fjárfestum, meðal annars Skúla Mogensen og fleiri hluthöfum MP banka. Skúli vildi ekki tjá sig um þessi mál í dag, þegar fréttastofa leitaði til hans, né forstjóri MP banka, Sigurður Atli Jónsson.Ekki augljóst Ýmsar hindranir eru þó í veginum fyrir því að viðskipti sem þessi geti gengið hratt og örugglega fyrir sig. Meðal annars er stærsti eigandi Framtakssjóðsins Landsbanki Íslands, með 28 prósent hlut, en aðrir eigendur eru 16 lífeyrissjóðir, og síðan á VÍS óverulegan hlut sömuleiðis. Líklegt má telja að eignarhald sjóðsins á stórum hluta í Íslandsbanka eða Arion banka kæmi inn á borð Samkeppniseftirlitsins af þessum sökum. Auk þess þyrfti enn fremur að fara fram hefðbundið mat að hálfu Fjármálaeftirlitsins, þar sem nýir eigendur þurfa að standast mat eftirlitsins.Erfitt að segja til um verð En hvers virði eru bankarnir? Það er erfitt að segja, eins og mál standa nú. Sé sérstaklega horft til Íslandsbanka eru heildareignir bankans metnar á um 813 milljarða og eigið fé er 140 milljarðar. Heildareignir Arion banka eru metnar á 876 milljarða og eigið fé bankans er 128 milljarðar. Landsbankinn er stærsti bankinn með heildareignir upp á 1.056 milljarða og eigið féð ríflega 200 milljarðar. Í ljósi þess hve vanskilahlutfall hefur verið hátt hjá endurreistu bönkunum, í samanburði við erlenda banka, er erfitt að segja til hvernig eignasöfn þeirra eru metin ef til viðskipta kemur. Heildareignir lífeyrissjóðanna eru nú metnar á 2.390 milljarða þar af er erlend verðbréfaeign upp á tæplega 550 milljarða. Horft er til þess að þessar breytingar á eignarhaldi á fjármálakerfinu geti styrkt það til framtíðar litið, ekki síst þar sem stór hluti kröfuhafa í þrotabú föllnu bankanna eru skammtímafjárfestar eins og erlendir vogunar- og skuldabréfasjóðir, og geti enn fremur auðveldað losun fjármagnshafta. Þá yrði ennfremur til við þetta fjárfestingatækifæri fyrir lífeyrissjóðina sem hafa haft takmörkuð fjárfestingatækifæri innan fjármagnshafta allt frá hruni, en fjárfestingaþörf þeirra á mánuði er 12 til 13 milljarðar króna.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira