Viðskipti innlent

Leiga hefur hækkað nær tvöfalt á við íbúðaverð í borginni

Leiga á íbúðum hefur hækkað nær tvöfalt á við íbúðaverð í höfuðborginni undanfarna 12 mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að vísitala leiguverðs í borginni hækkaði um 2,4% í febrúar miðað við mánuðinn á undan. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10,6%.

Íbúðaverð hefur hinsvegar hækkað um 5,7% að nafnverði undanfarna 12 mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×