Matur

Vala Matt: Uppskrift frá Völla Snæ á Borg Restaurant

Vala Matt sem er engri lík ferðast um Ísland í sælkeraþáttunum á Stöð 2.
Vala Matt sem er engri lík ferðast um Ísland í sælkeraþáttunum á Stöð 2.

Uppskrift frá Völla Snæ á Borg Restaurant

Súkkulaðikonfekt með kókosflögum

900 millilítrar af rjóma

ca.120 gr. krystalseraður sykur en má nota venjulegan sykur

ca.120 gr. glúkosi

ca. 1 msk. chilli-flögur

ca. 1 msk. mulinn koriander

ca. 16 stk. kardimommufræ

Aðferð:

Þessu er blandað saman í pott og beðið þar til suðan kemur upp. Því næst er potturinn tekinn til hliðar og plastfilma látin yfir í eina klukkustund. Svo er kryddið siktað frá og dökku súkkulaði blandað útí rjómann. Þegar búið er að hræra þetta saman þá er 120 ml af hreinni olíu helt úti og þetta hrært rólega svo það skilji sig ekki.

Súkkulaðið er síðan sett í bakka og þegar það hefur kólnað í ísskáp er það skorið í litla bita og búið til úr því litlar kúlur sem velt er uppúr kókosflögum. Kókosflögurnar eru settar í ofn á 180 gráður í 30 sek til þess að brúna þær örlítið. Súkkulaðikúlurnar eru bestar kaldar og því gott að geyma þær í kæli.

Borgrestaurant.is

Þóra Sigurðardóttir eiginkona Völla eldaði fyrir Völu Matt.

Uppskriftir frá Pallinum hjá Þóru Sigurðardóttur

Þorskur með steiktu grænmeti

Þorskbitar steiktir á pönnu í smjöri og olíu. Passa að pannan sé vel heit áður en fiskurinn er settur á pönnuna.   Kryddað með salti og pipar.  Hella síðan með skeið olíunni yfir fiskinn á meðan hann steikist.  Steikt salat, steikt uppúr chiliolíu og hvítlauksolíu.

Niðursneitt hvítkál

Forsoðnar kartöflur

Paprika

Tómatar

Rauðlaukur

Grænkál

Aðferð: 

Pannan verður að vera vel heit. Setja chili olíuna og hvítlauksolíuna á pönnuna og svo er niðursneitt grænmetið steikt uppúr olíunum. Chilisósa Og chili sósan er einföld hjá Þóru. Hún setur lófafylli af íslenskum chili kjarnhreinsuðum og setur svo repjuolíu og blandar. Og hvítlauksolían er bara hvítlaukur og olía blandað saman.



Marrokkósósa

300 gr. majones

300 gr. súrmjólk

50 gr. sólþurrkaðir tómatar

10 gr. hvítlaukur

2 tsk. salt

1 tsk. pipar

3 tsk cumin

3 tsk chillíduft

3 tsk paprikukrydd

3 tsk. karrí

200 ml. ólífuolía smá sítrónusafi - nýkreistur og fínn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×