Íslendingar eru velkomnir til Grænlands Þórður Snær Júlíusson skrifar 20. febrúar 2013 06:00 Grænlensk-íslenska viðskiptaráðið var stofnað í október 2012. Brian Bruus Pedersen situr í stjórn þess og Sigurður Skagfjörð Sigurðsson er stjórnarformaður. mynd/Kristín Hjálmtýsdóttir
Töluverð tækifæri eru fyrir íslensk fyrirtæki á Grænlandi og mikill vilji er til staðar hjá grænlenskum fyrirtækjum að vinna með þeim íslensku. Þetta segir Brian Bruus Pedersen, formaður Samtaka atvinnulífsins á Grænlandi og stjórnarmaður í Grænlensk-íslenska viðskiptaráðinu. Samtök Pedersen voru á meðal þeirra aðila sem stóðu að stórri ráðstefnu, „Future Greenland 2013“, sem fór fram í byrjun febrúarmánaðar. Á ráðstefnunni voru staddir fulltrúar frá fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum sem annaðhvort eru þegar með umsvif á Grænlandi eða eru að kanna möguleikann á því að hefja starfsemi þar. Líkt og greint verður ítarlega frá aftar í Markaðnum eru mikil uppgangstækifæri í Grænlandi. Pedersen segir íslensk fyrirtæki vel geta tekið þátt í þeim verkefnum sem fram undan eru. „Það þarf fullt af fyrirtækjum frá Íslandi, Skandinavíu og víðar til að koma hingað og keppa um þá samninga sem eru í boði. Okkur skortir bæði fjöldann og getuna til að geta gert þetta allt saman sjálf. Við þurfum á þessum fyrirtækjum að halda en ætlumst að sama skapi til þess að þau leggi sitt af mörkum til langtímavaxtar Grænlands.“ Að sögn Pedersen eru íslensku fyrirtækin sem nú þegar starfa á Grænlandi, til dæmis Ístak og Flugfélag Íslands, alvöru leikendur í grænlensku viðskiptalífi. „Grænlensk fyrirtæki vilja vinna með þeim íslensku.“ Miklar nýtanlegar náttúruauðlindir eru á Grænlandi, sérstaklega olíulindir og námuvinnslutækifæri. Pedersen segir ýmsar hindranir enn vera í vegi fyrir að nýting margra þeirra tækifæra geti hafist en að sérfræðingar fullyrði að þær verði yfirstignar á næstu árum. Spurður hvort það sé pólitísk samstaða um að feta þann veg að ráðast í þessi stóru verkefni segist hann telja svo vera.
Mest lesið Íbúðahótel í Reykjavík hætti rekstri vegna nýrra laga Viðskipti innlent Loka verslun Next í Kringlunni Viðskipti innlent Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Viðskipti innlent „Þetta módel gengur bara ekki upp“ Viðskipti innlent Galli í hugbúnaði leiddi til rangra greiðsluseðla Neytendur Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Atvinnulíf Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? Viðskipti innlent Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Viðskipti innlent Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Viðskipti erlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Norðurál getur keypt meiri orku af Landsvirkjun Magnús Örn til Fossa Isavia ANS hefur hamskipti og verður Avians Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? „Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Landsbankinn hækkar einnig vexti Fá þrjátíu aukamilljónir til að fylgjast með dagvörumarkaði Rekstur Hörpu stöðugur þrátt fyrir krefjandi aðstæður Loka verslun Next í Kringlunni Freyr ráðinn til Samtaka iðnaðarins „Þetta módel gengur bara ekki upp“ Íbúðahótel í Reykjavík hætti rekstri vegna nýrra laga Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Sjá meira