Viðskipti innlent

Heftir aðgengi ríkissjóðs að lánsfé

Hjörtur Hjartarson skrifar
Hagfræðingur segir breytingar matsfyritækisins Standard og Poors á lánshæfishorfum Íslands geta torvelt aðgang ríkissjóðs að lánsfé sem og aðila í einkageiranum. Hann telur litlar líkur á að lánshæfismat Íslands fari í ruslflokk.

Í nýrri skýrslu frá matsfyrirtækinu Standard og Poors kemur fram að lánshæfismat Íslands er óbreytt en horfunum er breytt úr stöðugum í neikvæðar, einu þrepi frá hinum illaða þokkaða ruslflokki. Helstu rök matsfyrirtækisins á þessum breytingum eru fyrirhugaðar niðurfærslur ríksstjórnarinnar á skuldum heimilanna sem leiða muni til verri afkomu ríkissjóðs. Gylfi Magnússon, hagfræðingur reiknar ekki með að nýja matið muni hafa mikil áhrif á íslenskan efnahag en þó sé ástæða til að hafa áhyggjur.





Gylfi Magnússon, hagfræðingur


"Lánshæfismatsfyrirtækin höfðu verið að horfa bjartari augum á ísland og verið aðeins að laga matið undanfarin misseri en núna virðist það hafa snúist við og það er útaf fyrir sig áhyggjuefni. Það hefur ekki bara áhrif á aðgengi ríkissjóðs að lánsfé heldur hugsanleg annarra aðila sem er ekki gott", segir Gylfi.

Mörg matsfyrirtæki hafa verið gagnrýnd undanfarin misseri og velta margir því fyrir sér hversu mikið mark á að taka á þeim. Gylfi segir gagnrýnina réttmæta og ekki eigi að taka mati þessara fyrirtækja sem algildum sannleik.

"En ef að þau koma fram með rökstuddar ábendingar er engu að síður rétt að bregðast við þeim eða allavega taka mark á þeim. Þetta álit þeirra hjá Standard og Poors er í sjálfu sér ágætlega rökstutt og ekkert út á rökstuðninginn að setja."

Nokkur matsfyrirtæki settu ríkissjóðs Íslands í ruslflokk 2010. Hverjar telur Gylfi líkurnar á að Ísland fari í þann flokk á ný?

"Ég á svosem ekki von á því að við lækkum niður í ruslflokk á næstu misserum nema að eitthvað gerist sem réttlætir það það væri þá helst einhverjar aðgerðir ríkisstjórnarinnar en maður verður auðvitað bara að treysta því og vona að þar viti menn hvað þeir eru að gera", segir Gylfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×