Lexus á jepplingamarkaðinn Finnur Thorlacius skrifar 4. september 2013 14:14 Afar kantaður jepplingur frá Lexus
Lúxusjepplingar hafa mjög rutt sér til rúms á síðustu árum. Bílar eins og Audi A5 og A3, BMW X3 og X1, Mercedes Benz GLK og GLA seljast vel þrátt fyrir að vera nokkru dýrari en jepplingar japönsku framleiðandanna. Lexus hefur hingað til ekki tekið þátt í samkeppninni í þessum flokki bíla, en nú er að verða breyting þar á. Eftir aðeins viku opnar stóra bílasýningin í Frankfurt og þar mun Lexus sýna þennan kantaða og kraftalega jeppling almenningi en hann hefur fengið nafnið LF-NX. Eins og með flesta Lexus bíla verður þessi jepplingur með Hybrid tækni, en Lexus hefur ekkert látið annað uppi um vélbúnað bílsins. Af myndum að sjá verður ekki minna lagt í innanrými bílsins en ytra útlitið. Lexus heldur sig gríðarstórt grill og kantaður framendinn sver sig verulega í ætt við nýlega breytta fólksbíla Lexus. Engum sögum fer af fyrirætlaðri framleiðslu bílsins, en títt er að sýna tilraunbíla á bílasýningum til þess að fá viðbrögð og ákvarðanir um framleiðslu eru teknar eftir það. Að bíllinn hafi fengið nafn bendir þó til að í framleiðslu hans verði farið.Flottur og framúrstefnulegur að innan
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent