Jákvæð afkoma hjá Hafnarfjarðarbæ Haraldur Guðmundsson skrifar 4. september 2013 14:45 Hagstæð gengisþróun á tímabilinu gerði það að verkum að fjármagnsliðir voru talsvert lægri en áætlun Hafnarfjarðarbæjar gerði ráð fyrir
Rekstrarniðurstaða A hluta bæjarsjóðs Hafnarfjarðar á fyrstu sex mánuðum ársins er jákvæð um rúmar 407 milljónir króna og rekstrarniðurstaða A og B hluta um 722 milljónir króna. Hagstæð gengisþróun á tímabilinu gerði það að verkum að fjármagnsliðir voru talsvert lægri en áætlun bæjarins gerði ráð fyrir, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ um árshlutauppgjörið. Þar segir að niðurstaðan sé í samræmi við fjárhagsáætlun bæjarins. „Veltufé frá rekstri í A hluta er um 582 milljónum króna og í A og B hluta nemur það um 977 milljónum króna. Heildareignir A hluta námu í júnílok 37.051 milljónum króna, skuldir og skuldbindingar 33.121 milljónum og eigið fé nam 3.930 milljónum króna. Heildareignir A og B hluta voru í lok tímabilsins 47.665 milljónir króna, skuldir og skuldbindingar 40.576 milljónir og eigið fé 7.089 milljónir króna. Á tímabilinu námu fjárfestingar um 120,2 milljónum króna og greiddar afborganir á tímabilinu 848 milljónum króna. Rekstur Hafnarfjarðarbæjar skiptist í A og B hluta. A hluti samanstendur af aðalsjóði, eignasjóði og GN eignum ehf. Í aðalsjóði er rekstur málaflokka og þjónusta við íbúa bæjarins sem fjármögnuð er með skatttekjum og þjónustugjöldum. Í eignasjóði er haldið utan um rekstur, viðhald og stofnframkvæmdir fasteigna og gatna. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki og rekstrareiningar sem eru í eigu bæjarins og fjármagnaðar með þjónustutekjum sem eru; Vatnsveita Hafnarfjarðar, Fráveita Hafnarfjarðar, Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarhöfn," segir í fréttatilkynningu bæjarins. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, þakkar þar öguðu starfsumhverfi og samhentu átaki stjórnenda og starfsfólks bæjarins fyrir jákvæða afkomu. „Verkefnið framundan er að styrkja þessa fjárhagsstöðu enn frekar og byggja á þeim grunni sem þegar hefur verið lagður á undanförnum árum,“ segir Guðrún Ágústa.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira