Tvíhliða myntsamstarf við Kanada var rætt á fundi Steingríms í Ottawa Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. apríl 2012 11:00
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að tvíhliða myntsamstarf við Kanada hafi komið til umræðu á fundi sem hann átti með fulltrúum Seðlabanka Kanada í Ottawa í síðustu viku. Sjá viðtal við Steingrím í myndskeiði með frétt. Steingrímur segir að Kanadadollarinn hafi ekki verið sérstakt dagskrárefni, heldur hafi þessi mál verið óformlega rædd. Steingrímur segir mikilvægt að draga upp þær sviðsmyndir sem til greina komi fyrir Ísland varðandi framtíð myntarinnar. Umræðan um þessi mál þurfi að byggjast á góðum greiningum og staðreyndum um hvaða möguleikar séu raunhæfir og hverjir ekki. Mikilvægast sé þó að undirstöðurnar séu í lagi, þ.e ríkisfjármálin, stöðugleiki og hagvöxtur. Steingrímur segir að skýrsla Seðlabankans sem komi í júní næstkomandi um valkosti Íslands í gjaldmiðilsmálum verði mjög mikilvægt gagn. Umræðan um Kanadadollar sé ekki tabú, en mikilvægt sé að menn séu niðri á jörðinni. Þess vegna sé nauðsynlegt að fara yfir þessi mál með kanadískum stjórnvöldum. Steingrímur segir að ekki sé ráðgert að halda annan fund með kanadíska seðlabankanum í bili, en hins vegar komi til greina að senda sendinefnd til Kanada til að skoða banka- og fjármálalöggjöf landsins í upplýsingaskyni. Sjá myndskeið með fréttinni þar sem Steingrímur svarar spurningum fréttastofunnar um málið. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Sjá meira