Hundaeigandinn kærður til lögreglu 2. apríl 2012 12:06 Mynd/AP
Eigandi tveggja hunda af Husky-kyni sem drápu kött í Foldahverfinu í Grafarvogi í gær hefur verið kærður til lögreglu. Árásin var svo grimmileg að dýrið hryggbrotnaði. Hundarnir réðust á læðuna Lóló um eittleytið í gærdag. Það var eigandi hennar sem hrakti hundana tvo á brott og var aðkoman hræðilega. Kötturinn, sem var útataður í blóði og stjarfur af hræðslu, drapst á leiðinni á dýraspítala en hann hryggbrotnaði í árásinni og var allur útbitinn. Eigandinn hringdi á neyðarlínuna um leið og árásin átti sér stað en auk þess fékk lögregla tilkynningu um að sömu hundar hefðu farið hálfir ofan í barnavagn á öðrum stað í hverfinu. Lögreglan elti hundana um hverfið og eftir nokkra stund tókst að loka þá inni í garði við Fjallkonuveg. Að því loknu var haft samband við eiganda þeirra sem kom á vettvang og tók dýrin í sína vörslu en annar hundurinn var blóðugur um kjaftinn eftir að hafa ráðist á köttinn. Eigandi kattarins fór til lögreglu í morgun og lagði fram kæru á hendur eiganda Husky-hundanna og hefur hann einnig haft samband við hundaeftirlit Reykjavíkur en þar bíða eftirlitsmenn eftir gögnum frá lögreglu. Eigandinn lítur málið grafalvarlegum augum og segist ekki vilja hugsa til þess hvað hefði geta gerst ef barnabörnin hefðu verið að leik fyrir utan húsið þegar hundana bar þar að.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira