Innlent

Með þýfi, amfetamín og kannabis í bílnum

Lögreglumenn á Selfossi höfðu afskipti af ökumanni á leið um Suðurlandsveg í Ölfusi um níuleytið í morgun. Í ljós kom að í bifreiðinni voru tveir karlar og ein kona og var ökumaðurinn undir sýnilegum áhrifum fíkniefna. Við leit í bifreiðinni fundust fíkniefni, amfetamín og gras. Auk þess var heilmikið af tóbaki, gosdrykkjum og fleiru smálegu. Við nánari skoðun kom í ljós að um var að ræða þýfi úr Kertasmiðjunni í Brautarholti á Skeiðum en þar var brotist inn í nótt. Fólkið var handtekið og fært í fangageymslu. Ökumaðurinn hefur viðurkennt innbrotið og er málið upplýst. Til viðbótar þessu var ökumaðurinn sviptur ökurétti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×