Innlent

Lögreglan lýsir eftir grárri Boru

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ljósgráum Volkswagen Bora með skráningarnúmerið UU-837 en bílnum var stolið frá Grjótaseli í Reykjavík um þar síðustu helgi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×