Kvartað undan lausagöngu Husky-hunda í Grafarvogi 2. apríl 2012 18:32
Kvartað hefur verið undan lausagöngu Siberian Husky-hunda í Grafarvogi að undanförnu en tveir slíkir léku þar lausum hala í gær og drap annar þeirra kött. Eigandinn, sem hefur sex Husky-hunda í sinni umsjá, var kærður í morgun. Hundarnir, tík og rakki, eru þriggja ára og úr sama goti. Það var tíkin sem réðst á læðuna Lóló í Foldahverfinu sem drapst skömmu eftir árásina en hún hryggbrotnaði og hlaut mörg ljót bitsár. Þessir sömu hundar fóru hálfir ofan í barnavagn á öðrum stað í hverfinu og náðust ekki fyrr en eftir nokkurn eltingaleik. Eigandi hundana fékk dýrin aftur í sína vörslu en hann hefur nú verið kærður til lögreglu. „Næstu skref eru að fara fram á skapgerðarmat á hundinum. Hafi hann ekki þegar verið aflífaður eða búið að taka ákvörðun um það, þá tökum við ekki ákvörðun um slíkt nema að undangengnu slíku mati," sagði Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Þá verður eigandanum gert að hafa hundinn mýldan þar til matið liggur fyrir en hann hefur samkvæmt heimildum fréttastofu sex Siberian Husky-hunda í sinni umsjá. Í samtali við fréttastofu sagðist íbúi á þessu svæði hafa orðið var við lausagöngu Husky-hunda að undanförnu en vildi þó ekki fullyrða að þarna hafi sömu hundar verið á ferðinni. „Já, við höfum fengið einhverjar tilkynningar um Husky-hunda á þessu svæði en við höfum ekki getað gripið þá sjálf." Árný segir lausagöngu hunda vera talsvert vandamál hér á landi og brýnir fyrir hundaeigendum að fara eftir reglum.
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira