Veruleg aukning á hagnaði Vodafone milli ára 28. ágúst 2012 11:06
Hagnaður af rekstri Vodafone eftir skatta var 206 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. samanborið við 56 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Niðurstaðan er því umtalsvert betri en á sama tíma í fyrra. Í tilkynningu segir að ástæður þessa góða árangurs eru nokkrar. Tekist hefur að hagræða verulega í rekstrinum og á tímabilinu tóku stefnumarkandi fjárfestingar undanfarinna ára að skila sér í lægri kostnaði og auknum tekjum. Viðskiptavinum í mikilvægum tekjuflokkum fjölgaði og fjarskiptanotkun jókst, samhliða auknum umsvifum fyrirtækja og vaxandi einkaneyslu. Þá hefur viðsnúningur orðið á starfsemi félagsins í Færeyjum. Vegna aðstæðna í efnahagslífinu hafði ekki verið gert ráð fyrir tekjuaukningu milli ára, en með sértækum aðgerðum og markvissri aðlögun að krefjandi rekstrarumhverfi tókst að auka tekjurnar. Þær námu 6,5 milljörðum króna á tímabilinu og hækkuðu um 5% milli ára. Aukningin var mest í sjónvarpsþjónustu en þar nam hækkunin 19% milli ára. Tekjur af gagnaflutningsþjónustu hækkuðu um 17% og af farsímaþjónustu um 1%. Fastlínutekjur lækkuðu um 4% en ýmsar aðrar tekjur stóðu í stað. "Við erum mjög ánægð með árangurinn á fyrri helmingi ársins og stolt af því að geta kynnt þessar niðurstöður. Þær gefa okkur byr í seglin og eru til merkis um einbeittan vilja starfsmanna til að skara fram úr," segir Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone í tilkynningunni. „Við höfum á undanförnum misserum gripið til margvíslegra aðgerða sem hafa miðað að því að straumlínulaga félagið. Við höfum breytt skipulagi, fækkað starfsfólki ,breytt áherslum í rekstrinum og búið fyrirtækið undir framtíðina. Að sama skapi eru þetta jákvæðar fréttir í aðdraganda skráningar félagsins í Kauphöll Íslands, en að henni er stefnt á fjórða ársfjórðungi."
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira