Telur óþarft að banna sveitarfélögum að taka erlend lán Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. ágúst 2012 11:32 Halldóri Halldórssyni finnst óþarfi að banna sveitarfélögum að taka erlend lán. mynd/ anton brink
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir óþarft að banna sveitarfélögum að taka erlend lán, eins og Seðlabankinn leggur til. Í skýrslu Seðlabankans, sem ber titilinn Varúðarreglur eftir fjármagnshöft, og fjallar um það hvaða regluverk mun taka við þegar gjaldeyrishöftum verður aflétt er mælst til þess að settar verði skorður við lánveitingum í erlendum gjaldmiðlum til sveitarfélaga, heimila og annarra sem ekki hafa tekjur eða eignir í erlendum gjaldmiðli. Þetta megi gera með beinum lagafyrirmælum eða með óbeinum varúðarreglum. „Ég verð að segja alveg eins og er að ég er ekki hlynntur slíkum boðum og bönnum," segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Sveitarstjórnamenn eru kjörnir af almenningi og þeir eiga að standa og falla með sínum verkum, líka hvort þeir hafi tekið skynsamlegar eða óskynsamlegar ákvarðanir þegar þeir tóku erlend lán," segir Halldór enn fremur. Halldór tekur þó skýrt fram að hann telji að sveitarfélög eigi að varast erlend lán. „En mér finnst að það eigi að vera mat hvers og eins sveitarfélags en ekki að stjórnvaöld eigi að banna þetta," bætir hann við. Þannig sé þetta á ábyrgð sveitastjórna í hverju sveitarfélagi fyrir sig. „Íbúar bera ábyrgð á sínum sveitarstjórnarmönnum, þeir völdu þá. Og sveitastjórnarmenn bera ábyrgð gagnvart íbúunum," segir Halldór. Halldór bætir því við að það séu komnar fjármálareglur fyrir sveitarfélgöin sem Samband íslenskra sveitarfélaga hafi kallað stíft eftir. „Ég tel því að við séum komnir með nægjanlega stífan ramma utan um fjármál sveitarfélaga og þetta sé óþarfa viðbót," segir Halldór að lokum.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira