Skuldatryggingaálag Íslands lækkar nokkuð 28. ágúst 2012 11:24
Skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur lækkað nokkuð að undanförnu. Þannig stóð skuldatryggingaálagið í lok dags í gær í 249 punktum (2,49%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni en fyrir um viku síðan var það að sveiflast í kringum 280 punkta. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að frá áramótum talið hefur álagið að jafnaði verið um 276 punktar og er því álagið nú nokkuð lægra, en miklar sveiflur eru á því frá einum degi til annars. Af þeim ríkjum Vestur-Evrópu sem seldar eru skuldatryggingar fyrir er skuldatryggingaálagið langhæst á Grikkland, sem er ekkert nýtt af nálinni enda hefur slíkt verið raunin síðustu misserin og er landið vart samanburðarhæft við önnur lönd. Næsthæst er álagið á Portúgal (689 punktar) og í kjölfarið kemur Spánn (490 punktar). Í þessum samanburði er álagið á Ísland hið sjötta hæsta, en álagið á Ítalíu (445 punktar) og Írland (437 punktar) er hærra. Segja má að horfur á næstu tveimur árum í þessum löndum samræmist nokkuð skuldatryggingaálagi þeirra. Í nýjustu spá Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD sem er frá því í júní sl. horfir einna verst á því tímabili hjá undangreindum evruríkjum. Þannig reiknar stofnunin með mestum samdrætti á þessu ári í Grikklandi (-5,3%) af öllum löndum OECD sem eru 34 talsins, og næstmestum í Portúgal (-3,2%). Þar að auki er reiknað með samdrætti á Ítalíu (-1,7%) og á Spáni (-1,6%). Í raun eru hagvaxtahorfurnar hér á landi mjög góðar í samanburði við önnur OECD ríki. Stofnunin spáir hagvexti upp á 3,1% hér á landi í ár og 2,7% á næsta ári, en að meðaltali 1,6% hagvexti í ríkjum OECD í ár og 2,2% á næsta ári, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Sjá meira