Bankinn braut reglurnar en stjórnendur hans ekki 27. júní 2012 05:30 FSA komst að þeirri niðurstöðu að Ármann Þorvaldsson, Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson hefðu ekki brotið reglur eftirlitsins. Ármann telur málatilbúnaðinn aldrei hafa átt rétt á sér.
Breska fjármálaeftirlitið (FSA) telur að Kaupthing-Singer&Friedlander (KSF) hafi brotið gegn reglum eftirlitsins með því að hafa ekki aðgætt almennilega og tafarlaust hvort þröng lausafjárstaða móðurbankans Kaupþings á Íslandi í miðju hruninu myndi hafa skaðleg áhrif á lausafjárstöðu dótturbankans. Sigurður Einarsson, fyrrum starfandi stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum forstjóri bankans, og Ármann Þorvaldsson, fyrrum forstjóri KSF, sem voru allir til rannsóknar í málinu, brutu hins vegar ekki gegn neinum reglum samkvæmt niðurstöðu FSA. Þeir hafa samt sem áður samþykkt að sækjast ekki eftir yfirmannastöðum í bönkum í fimm ár frá falli KSF. Það bann gildir fram í byrjun október 2013. Joseph Eyre, framkvæmdastjóri á upplýsingaskrifstofu FSA, segir niðurstöðuna snúast um að KSF sem heild hafi ekki brugðist rétt við og þar með brotið reglur. Spurður hvernig banki geti brotið reglur án þess að einstaklingarnir sem taka ákvörðun innan hans geri það segir Eyre að ákvarðanir stjórnenda geti stundum verið rangar, en að þær séu hvorki teknar af illum ásetningi né óskynsemi. „Ef við ætluðum að grípa til aðgerða gagnvart einstaklingi þá hefðum við þurft sérstaklega að tilgreina hvaða verknað hann hafi átt að hafa framið sem braut gegn reglum okkar. Þá hefðum við þurft að geta sýnt fram á persónulegt saknæmi einstaklingsins.“ Hreiðar Már sendi forsætisráðherra Íslands bréf í september 2010 þar sem hann sagði að FSA hefði tilkynnt honum að rannsókn þess á starfsemi KSF væri lokið. Sú niðurstaða sem hann lýsir í bréfinu er sú sama og kemur fram í tilkynningu FSA frá því í gær. Hreiðar segir þar enn fremur að honum hafi verið „boðið að ljúka málinu með greiðslu sektar að upphæð 35 þúsund pund“. Á þeim tíma nam sú upphæð 6,3 milljónum króna. Hreiðar Már féllst ekki á sáttina heldur leitaði eftir því að „fá það afdráttarlaust viðurkennt að ég hafi ekki brotið af mér á nokkurn hátt í störfum mínum fyrir bankann í Bretlandi“, líkt og segir í bréfinu. Ármanni og Sigurði var boðið að klára málið á sama hátt en þeir neituðu því einnig. Vert er að taka fram að rannsókn FSA sneri eingöngu að KSF en ekki að starfsemi Kaupþings á Íslandi, þar sem FSA hafði ekki eftirlit með þeim banka. Í niðurlagi tilkynningar eftirlitsins segir að lok rannsóknar þess hafi ekki áhrif á aðrar rannsóknir sem verið sé að gera á starfsemi Kaupþings á Íslandi af öðrum stofnunum, jafnt breskum sem í öðrum löndum.thordur@frettabladid.is
Mest lesið Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Sjá meira