Steingrímur J. sneri við umdeildri ákvörðun forvera síns 27. júní 2012 02:15 Steingrímur J. Sigfússon
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur auglýst og úthlutað tollkvótum vegna innflutnings á kjötvörum, smjöri og ostum fyrir tímabilið júlí 2012 til júní 2013. Þá úthlutaði ráðuneytið í fyrsta skipti tollkvótum vegna innflutnings á kinda- og geitakjöti. „Það hvort ætti að úthluta tollkvótunum hefur yfirleitt verið viðkvæmt mál í ráðuneytinu. Fyrst um sinn var reyndar lítil eftirspurn eftir kvótunum og sérstaklega með tilliti til lambakjöts enda ekki verið vöntun á lambakjöti hér á landi,“ segir Ólafur Friðriksson, skrifstofustjóri framleiðslu- og markaðsskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, og heldur áfram: „En það var ákvörðun núverandi ráðherra að þetta væri þjóðréttarleg skuldbinding Íslands og því bæri að úthluta kvótanum jafnvel þó eftirspurn væri ekki mikil eins og raunar kom á daginn með lambakjötið.“ Við úthlutunina nú sneri Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra við breytingum sem Jón Bjarnason, forveri Steingríms, gerði á fyrirkomulagi úthlutunarinnar. Tollkvótarnir sem um ræðir byggja á aðild Íslands að GATT-samningnum svokallaða, á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem Ísland gerðist aðili að árið 1995. Með aðildinni skuldbatt Ísland sig til að hleypa litlu magni búvara inn á innlendan markað með lægri tollum en almennt tíðkast til að auka samkeppni á búvörumarkaði og stuðla þannig að lægra verði fyrir neytendur. Fyrirkomulagi þessara lægri tolla var hins vegar breytt árið 2009 af Jóni. Frá 1995 höfðu þetta verið magntollar þar sem föst krónutala var lögð á hvert kíló af innfluttu kjöti en Jón breytti þeim í verðtolla. Við breytinguna hækkuðu tollarnir svo mikið að í mörgum tilfellum varð dýrara að flytja inn vörur á undanþágunni en vörur sem lagðir eru á almennir tollar. Nú hefur Steingrímur hins vegar snúið þessari ákvörðun við. Áður hafði umboðsmaður Alþingis gert athugasemd við heimild ráðherra til þess að breyta tollunum. Var í kjölfarið skipaður starfshópur um málið en að vinnu hans lokinni lagði Steingrímur fram frumvarp á þingi um breytingar á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra verði framvegis skylt að úthluta tollkvótunum þegar sýnt þyki að ekki sé nægjanlegt framboð af viðkomandi vöru á innanlandsmarkaði. Í gildandi lögum er kveðið á um heimild ráðherra til þessa. Þá eru skilgreind skýr viðmið sem ráðherra ber að fara eftir þegar hann metur hvort framboð hér sé nægjanlegt. Frumvarp Steingríms náði þó ekki fram að ganga á því þingi sem er nýlokið. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent 43 ára kvikmyndasaga kvödd Lífið samstarf Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Sjá meira