Segja lánin ekki fela í sér persónulegar ábyrgðir ÞJ skrifar 31. október 2012 08:00 Aðalmeðferð í máli BGE gegn Gunnari Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, fór fram í gær. Fréttablaðið/Anton
Mál þrotabús BGE eignarhaldsfélags gegn Gunnari Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs Group, var tekið til aðalmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Málið snýst um lán sem Gunnar, ásamt öðrum starfsmönnum, fékk til þess að kaupa hlutabréf í Baugi í gegnum BGE. BGE var stofnað í nóvember 2003 í þeim tilgangi að halda utan um kaupréttarsamningakerfi starfsmanna Baugs. Kerfið, sem var hannað af KPMG, virkaði þannig að Kaupþing lánaði Baugi, gegn veði í hlutabréfum félagsins, og Baugur lánaði féð síðan áfram til starfsmanna Baugs. Starfsmennirnir fengu lánað fyrir hlutabréfum sem þeir máttu svo selja á ákveðnum tímum. Starfsmennirnir halda því fram að lánin feli ekki í sér persónulegar ábyrgðir. Þessu er skiptastjóri þrotabúsins ósammála. Á Vísi.is kemur fram að fjörutíu starfsmenn Baugs hafi gert slíka samninga, en skiptastjóri BGE ákvað að láta reyna á innheimtu fimmtán stærstu skuldaranna. Meðal stærstu skuldara voru, auk Gunnars, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, þá aðaleigandi Baugs, Skarphéðinn Berg Steinarsson og Stefán H. Hilmarsson. Þeir fjórir skulduðu samanlagt rúman milljarð króna en heildarlánin voru 3,4 milljarðar. Niðurstöðu í málinu má vænta innan nokkurra vikna. Tekið skal fram að Jón Ásgeir er eiginmaður Ingibjargar Pálmadóttur, aðaleiganda 365 sem gefur meðal annars út Fréttablaðið.
Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Sjá meira