Hvergi fleiri bankastarfsmenn en hér á landi Magnús Halldórsson skrifar 31. október 2012 11:58
Þrátt fyrir að endurreista íslenska bankakerfið sé það minnsta á Norðurlöndum eru hlutfallslega hvergi fleiri bankastarfsmenn. Meira en þrefalt fleiri bankastarfsmenn eru hér á landi á hverja þúsund íbúa heldur en í Svíþjóð. Bankakerfið íslenska var samanburði við landsframleiðslu eitt það stærsta í heimi, á árunum fyrir hrun fjármálakerfisins í október 2008. Hið endurreista kerfi, byggt á grunni innlendra eigna þeirra gömlu, er gjörólíkt því gamla, en það er ríflega fimm sinnum minna, eða sem nemur ríflega tvöfaldri árlegri landsframleiðslu Íslands, sé mið tekið af efnahagsreikningum bankanna. Íslenska bankakerfið er nú hið minnsta á Norðurlöndum, og sem dæmi má nefna er það næstum tvöfalt minna en danska bankakerfið, sem er ríflega fjórfallt stærra en sem nemur árlegri landsframleiðslu í Danmörku. Í skýrslu sem alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið McKinsey & Company kynnti um Ísland, í gær, er farið ofan í saumana á íslenska bankakerfinu. Í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir að bankakerfið sé mun minna en á hinum Norðurlöndunum er starfsmannafjöldinn hvergi meiri hlutfallslega. Þannig eru 10,3 bankastarfsmenn á hverja þúsund íbúa hér á landi, á meðan fjöldinn er miklu lægri í öðrum Norðurlöndunum, eða að meðaltali ríflega fimm starfsmenn. Í Danmörku eru 6,9 bankastarfsmen á hverja þúsund íbúa, 4,8 í Finnlandi, og í Noregi 4,2. Í Svíþjóð eru þrír bankastarfsmenn á hverja þúsund íbúa, samanborið við ríflega 10 hér, þrátt fyrir að sænska bankakerfið sé hlutfallslega mun stærra en það íslenska. Íslenska bankakerfið er nú 218 prósent af árlegri landsframleiðslu, 432 prósent í Danmörku, 266 í Finnlandi, 251 í Noregi og 295 í Svíþjóð, að því er fram kemur í skýrslu McKinsey.
Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira