Hrafnhildur og Garðar Hólm hlutu verðlaun Skúla Fógeta 2. febrúar 2012 13:19 Verðlaunahafarnir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, og Garðar Hólm Kjartansson, sjást hér þegar þau veittu verðlaunum viðtöku, ásamt Ásgeiri Jónssyni, efnahagsráðgjafa GAMMA og formanni dómnefndar verðlaunanna.
Í tilefni af 300 ára afmæli Skúla Magnússonar Fógeta þann 11. desember 2011 ákvað fyrirtækið GAMMA að stofna til verðlauna sem afhent verða árlega fyrir bestu meistararitgerð á sviði fjármála og efnahagsmála á árinu 2011. Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Garðar Hólm Kjartansson deila verðlaunum að þessu sinni. Fjölmargar vandaðar og góðar ritgerðir bárust í ritgerðarsamkeppnina, að því er segir á vefsíðu GAMMA. „Niðurstaða dómnefndar undir forystu Dr. Ásgeirs Jónssonar efnahagsráðgjafa GAMMA var að tvær ritgerðir myndu skipta með sér fyrstu verðlaunum fyrir árið 2011. Hrafnhildur Gunnarsdóttir hlaut verðlaun fyrir meistararitgerð í Viðskiptafræði og Garðar Hólm Kjartansson fyrir meistararitgerð í Fjármálaverkfræði," segir á vefsíðu GAMMA. „Ritgerð Hrafnhildar nefnist Fjárheimildir heilbrigðiskerfisins – úthlutun á rekstrareiningar með höfðatöluaðferð. Ritgerðin byggir á rannsóknarverkefni þar sem lögð var fram aðferðafræði við að reikna út fjárheimildir til rekstrareininga innan heilbrigðiskerfisins. Aðferðin var yfirfærð á íslenskar aðstæður og byggir m.a. á reynslu annarra ríkja. Leiðbeinandi Hrafnhildar við meistararitgerðina var Þórólfur Matthíasson. Ritgerð Garðars nefnist Áhrif Solvency II á íslenskan vátryggingamarkað og hagkvæmni eigin líkans til útreiknings á gjaldþolskröfu. Samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins verða vátryggingafélög að velja á milli staðlaðrar aðferðar til að reikna gjaldþolskröfu sína og eigin líkans. Garðar stillir upp þessum tveimur kostum og ber saman. Helstu niðurstöður hans eru þær að gjaldþolskröfurnar komi til með að hækka mjög mikið og það muni hafa áhrif á fjárfestingastefnur íslenskra vátryggingarfélaga. Þau geti hins vegar lækkað gjaldþolskröfuna með smíði og innleiðingu á eigin líkani. Leiðbeinendur Garðars við meistararitgerðina voru Helgi Þórsson, Birgir Hrafnkelsson og Ólafur Pétur Pálsson," segir á vefsíðu GAMMA. Ásgeir sagði í samtali við fréttastofu að margar ritgerðir hafa borist í keppnina og hafi margar þeirra verið athyglisverðar og vel unnar. Ritgerðirnar sem að lokum voru verðlaunaðar hafi verið taldar bestar, ekki síst þar sem þær taki vel á sértækum en mikilvægum efnum. Nánari umfjöllun um verðlaun Skúla Fógeta má sjá á vefsíðu GAMMA, hér.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira