Innlent

FME: Gengislánadómur ógnar ekki fjármálastöðuleika

mynd/FME
Fjármálaeftirlitið telur að áhrif gengislánadómsins frá 15. febrúar á þessu ári ógni ekki fjármálastöðuleika í landinu. Þetta kemur fram í minnisblaði stofnunarinnar.

Í minnisblaðinu eru dregnar saman niðurstöður Fjármálaeftirlitsins um hvaða áhrif dómurinn hefur á bókfært virði gengislána í útlánasöfnum lánastofnana.

Þá voru lánastofnanirnar beðnar um að meta áhrif dómsins út frá fjórum sviðsmyndum þar sem sviðsmynd 1 gekk hvað lengst í túlkun dómsins til hins verra fyrir lánastofnannir og sviðsmynd 4 skemmst.

Hægt er að nálgast minnisblað Fjármálaeftirlitsins hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×