Sjálfstæðisflokkurinn með 43% 14. apríl 2012 08:00 Bjarni Benediktsson mynd/gva
Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuð og herðar yfir aðra flokka samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Stjórnarflokkarnir njóta samanlagt stuðnings ríflega 23 prósenta. Torvelt gæti reynst að mynda ríkisstjórn án aðildar Sjálfstæðisflokksins verði niðurstöður kosninga í takt við niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins. Flokkurinn nýtur stuðnings tæplega 43 prósenta kjósenda og fengi samkvæmt því 29 þingmenn. Fimm aðrir flokkar fengju þingmenn kjörna samkvæmt könnuninni, og þyrftu þeir að mynda fimm flokka stjórn ætluðu þeir sér að halda Sjálfstæðisflokknum frá stjórnarráðinu. Stuðningur við Samstöðu, flokk Lilju Mósesdóttur, dregst verulega saman frá könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var snemma í febrúar. Þá mældist flokkurinn með 21 prósents fylgi, en fengi um sex prósent og fjóra þingmenn samkvæmt nýju könnuninni. Stjórnarflokkarnir myndu ekki ríða feitum hesti frá kosningum samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Samfylkingin mælist með tæplega fimmtán prósenta stuðning og Vinstri grænir með tæplega níu prósent. Samanlagt fengju flokkarnir 16 þingmenn, langt frá þeim 32 sem þeir hafa í dag, eftir afföll í þingliði Vinstri grænna á kjörtímabilinu. Enn er hátt hlutfall kjósenda sem ekki gefa upp afstöðu sína í könnuninni. Um tíu prósent sögðust óákveðin og tæp 16 prósent sögðust ekki myndu kjósa eða skila auðu yrði gengið til kosninga nú. Þá vildu 20 prósent ekki gefa upp afstöðu sína.- bj / sjá síðu 8
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Fleiri fréttir Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Sjá meira