Ríkið fær 1,8 milljarða í arð frá Landsvirkjun 14. apríl 2012 07:30 Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Hörður Arnarson forstjóri á ársfundi fyrirtækisins á fimmtudag. Fréttablaðið/Vilhelm
Rekstrarhagnaður Landsvirkjunar jókst talsvert árið 2011. Fjármálastjóri fyrirtækisins segir skuldastöðu þess viðráðanlega með þeim fyrirvara þó að lokist erlendir fjármagnsmarkaðir gæti hið opinbera þurft að styrkja eigið fé félagsins. Rekstur Landsvirkjunar batnaði nokkuð á árinu 2011. Rekstrarhagnaður jókst talsvert en skuldsetning fyrirtækisins er enn mikil eftir fjárfestingar síðasta áratugar. Landsvirkjun kynnti ársreikning sinn fyrir síðasta ár á ársfundi félagsins á fimmtudag. Þrátt fyrir bætta rekstrarniðurstöðu minnkaði hagnaður Landsvirkjunar talsvert á milli ára. Var hagnaður ársins 26,5 milljónir Bandaríkjadala, jafngildi 3,4 milljarða króna, samanborið við 72,9 milljóna dala hagnað árið 2010. Munurinn skýrist af óhagstæðri gengisþróun sem breytti talsvert bókfærðu virði raforkusölusamninga fyrirtækisins. Vegna afkomu ársins mælir stjórn Landsvirkjunar með því að 14 milljónir dala, eða 1,8 milljarðar króna, verði greiddar í arð til ríkissjóðs. Fjögur ár eru liðin frá síðustu arðgreiðslu fyrirtækisins sem var 7,8 milljónir dala. Eins og áður sagði batnaði rekstrarniðurstaða Landsvirkjunar mikið í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 354 milljónum Bandaríkjadala, jafngildi 45 milljarða króna á núverandi gengi. Hækkaði EBITDA því um 16 prósent á milli ára. Skýrist hækkunin af því að rekstrartekjur hækkuðu verulega umfram rekstrargjöld og hafa tekjurnar aldrei verið hærri í sögu Landsvirkjunar. Rekstrartekjur voru alls 436 milljónir dala sem jafngildir 55,4 milljörðum króna. Til samanburðar voru rekstrartekjur 378 milljónir dala árið 2010 og hafa hæst farið áður í 397 milljónir dala árið 2008. Helstu áhættuþættir í rekstri Landsvirkjunar eru sem fyrr þróun álverðs, vaxta og gengis gjaldmiðla. Þannig kom fram í máli Rafnars Lárussonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Landsvirkjunar, á ársfundi að þróun álverðs frá áramótum benti til þess að tekjur fyrirtækisins yrðu lægri á þessu ári en því síðasta. Þá gerði Rafnar skuldastöðu fyrirtækisins að umtalsefni. Vaxtaberandi lán voru alls 2,7 milljarðar dala í lok síðasta árs og var meðallíftími lánasafnsins 7,6 ár. Er Landsvirkjun umtalsvert skuldsettari en sambærileg fyrirtæki í nágrannalöndum Íslands. Síðustu þrjú ár hefur handbært fé frá rekstri Landsvirkjunar dugað til að standa undir endurgreiðslum lána. Þá sagði Rafnar það sama gilda um fyrirsjáanlegar endurgreiðslur verði ekki ráðist í stórar fjárfestingar. Hann rak þó þann varnagla að Landsvirkjun væri háð aðgengi að langtímafjármagni á mörkuðum. Yrðu aðstæður á lánamörkuðum þannig að fyrirtækið gæti ekki sótt sér langtímafjármagn á viðunandi kjörum þyrfti að skoða þörfina á því að styrkja eigið fé félagsins. Slík innspýting kæmi þá frá íslenska ríkinu.magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira