Hægt að sjöfalda lífræna framleiðslu Erla Hlynsdóttir skrifar 14. apríl 2012 18:43
Raunhæft er að stefna að sjöföldun lífrænnar framleiðslu á íslenskum markaði fyrir lok þessa áratugar. Þetta segir formaður þingnefndar um eflingu græna hagkerfisins. Samtök lífrænna neytenda skilaði í dag skýrslu sinni til yfirvalda um hvernig móta skuli stefnu í þessum málum. Fyrsti aðalfundur Samtaka lífrænna neytenda var haldinn í Reykjavíkurakademíunni í dag, en ár er síðan samtökin voru stofnuð. Tilgangur þeirra er að stuðla að aukinni framleiðslu vottaðra lífrænna vara á Íslandi með velferð almennings, búfjár og umhverfisins að leiðarljósi. Skýrslan var unnin eftir fund félagsmanna með landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra þar sem sérstaklega var óskað eftir hugmyndum samtakanna. „Við erum þó það vel sétt, versus meginland Evrópu til dæmis, að skrefin sem við þurfum að taka til að efla lífræna ræktun eru miklu minni og ódýrari heldur en heldur en á meginlandi Evrópu vegna þess að við erum einangrað land og höfum þurft að nota minna af eiturefnum og slíku," segir Örn Haraldsson, fulltrúi Samtaka lífrænna neytenda. Skýrsla samtakanna var kynnt á aðalfundinum og hún afhent Skúla Helgasyni, formanni þingnefndar um eflingu græna hagkerfisins. Í skýrslunni er meðal annars lagt til að hlutfall lífrænnar framleiðslu á Íslandi verði orðin fimmtán prósent árið 2020. „Það er alveg rétt að þetta er mjög metnaðarfullt markmið því hlutdeild lífrænt vottaðra vara á íslenskum markaði í dag er í kring um tvö prósent, og það kallar á gríðarlegt átak ef við ætlum að ná þessu hlutfalli upp í fimmtán prósent. við erum hins vegar þeirrar skoðunar að þetta sé vel hægt ef við förum strax í að leggja fram tillögur um áfanga á þessari leið," segir Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar. Þetta markmið er í samræmi við þingsályktunartillögu nefndarinnar sem var samþykkt á dögunum með öllum greiddum atkvæðum. Næsta skref Skúla er að kynna skýrslu Samtaka lífrænna neytenda fyrir þingmönnum og ráðherrum sem að málaflokknum koma.Á vef Samtaka lífrænna neytenda má lesa skýrsluna, sem og skýrslu framkvæmdanefndar samtakanna fyrir fyrsta starfsárið.
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira