Tapaði 1,4 milljörðum á því að selja HS Orku 13. janúar 2012 08:45 Orkufyrirtækið var stærsta eign GGE. Eignarhlutur félagsins í því var seldur til Magma fyrir 14,9 milljarða króna í maí 2010. fréttablaðið/Valli
Geysir Green Energy tapaði yfir milljarði króna á því að selja hlut sinn í HS Orku. Magma greiddi meðal annars með 7,9% hlut í sjálfu sér. Félagið gerði kyrrstöðusamning við Íslandsbanka. Það ætlar að ljúka sölu eigna á árinu 2012. Geysir Green Energy (GGE) tapaði 1,4 milljörðum króna á sölu á 57,4% hlut sínum í HS Orku í maí 2010. Hluturinn var seldur til Magma Energy sem greiddi meðal annars fyrir hann með 7,9% hlut í sjálfu sér. Alls er bókfært söluverð hlutarins 14,9 milljarðar króna, sem er töluvert lægri tala en sagt var frá í tilkynningu þegar salan fór fram. Þetta kemur fram í skýringum með ársreikningi GGE sem Fréttablaðið hefur undir höndum. GGE tapaði 5,5 milljörðum króna á árinu 2010. Þar segir einnig að GGE hafi gert kyrrstöðusamning (e. stand-still agreement) við helsta lánardrottinn sinn, Íslandsbanka, um að bankinn muni ekki gjaldfella skuldir félagsins fyrr en í fyrsta lagi í lok júní 2011. Síðan segir: „eigendur og stjórn félagsins munu á árinu 2011 endurskipuleggja eignir og skuldir félagsins í samvinnu með lánadrottnum félagsins með það að markmiði að hámarka virði eigna félagsins. Vegna mikilla skulda Geysir Green Energy ehf. er framtíð þess óviss og í höndum lánadrottna félagsins“. Spurður hvar þessi mál standa í dag segir Alexander Guðmundsson, forstjóri GGE, að félagið hafi verið að selja eignir, sú sala hafi gengið vel og reiknað sé með að henni verði lokið árið 2012. „Verðmætustu eignir félagsins voru hlutabréfin í HS Orku sem seld voru til Magma Energy Sweden árið 2010 og svo allt hlutafé Jarðborana sem Íslandsbanki leysti til sín og færði til Miðengis, en Jarðboranir eru nú í söluferli.“ Í ársreikningnum kemur fram að 57,4% hlutur GGE í HS Orku hafi verið seldur til Magma Energy í maí 2010 á 14,9 milljarða króna. Í tilkynningu vegna sölunnar á sínum tíma var kaupverðið sagt „um 16 milljarðar króna“. Bókfært tap GGE vegna sölu á hlutabréfum í HS Orku á árinu 2010 var 1,4 milljarðar króna. Í skýringum með ársreikningnum kemur einnig fram að GGE eigi 7,9% hlut í Magma, sem síðar var sameinað Plutonic Power Corp. og endurnefnt Alterra Power. Sá hlutur var partur af uppgjörinu þegar GGE seldi hlut sinn í HS Orku til Magma. GGE er því enn óbeinn eigandi að HS Orku.thordur@frettabladid.is
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira