Grunaðir um að hafa smyglað hingað áður 18. apríl 2012 11:00 Fyrstu tvær ferðatöskurnar sluppu fram hjá hinum árvökula Nelson í mannmergðinni á sunnudag, en hann þefaði þá þriðju uppi og það dugði til. Fréttablaðið/anton
Hundurinn Nelson kom upp um smygl á um tíu kílóum af amfetamíni frá Póllandi. Einn mesti fíkniefnafundur í Leifsstöð í langan tíma. Fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Mennirnir eru taldir hafa smyglað hingað fíkniefnum áður. Lögreglan handtók fjóra menn að morgni sunnudags eftir að mikið magn fíkniefna fannst í farangri í Leifsstöð. Fjórmenningarnir voru í kjölfarið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins lítur lögreglan svo á að hún hafi með þessu farið langt með að uppræta nokkuð umfangsmikla smyglstarfsemi sem hafi staðið um nokkurt skeið. Þetta sé með öðrum orðum ekki í fyrsta sinn sem mennirnir hafi flutt fíkniefni til landsins. Mennirnir eru allir pólskir. Þrír þeirra komu til Íslands á sunnudagsmorgun með flugi Iceland Express frá Varsjá í Póllandi. Tveir þeirra fóru í gegnum tollinn athugasemdalaust og héldu af stað til Reykjavíkur. Hinn þaulreyndi fíkniefnahundur Nelson fann hins vegar lykt af farangri þess þriðja og var hann þegar í stað tekinn höndum. Við leit fannst á fjórða kíló af amfetamíni, sem hafði verið pakkað rækilega inn í umbúðir, meðal annars sjampóbrúsa. Tollverði og lögreglumenn í Leifsstöð grunaði strax að maðurinn hefði ekki verið einn á ferð og grennsluðust fyrir um ferðafélaga hans. Það leiddi þá á spor tvímenninganna, sem þá sátu í leigubíl á Reykjanesbraut. Bíllinn var stöðvaður í Kópavogi og leitað í farangri mannanna. Í ljós kom að báðir höfðu þeir í fórum sínum sams konar pakkningar og sá sem tekinn hafði verið í Leifsstöð. Ekki er komin endanleg niðurstaða um heildarmagn efnanna, en talið er að þau vegi um eða yfir tíu kíló. Það er einn mesti fíkniefnafundur í Leifsstöð í langan tíma. Í kjölfarið var fjórði maðurinn handtekinn. Sá er einnig pólskur en ólíkt hinum er hann búsettur hérlendis. Mennirnir voru allir úrskurðaðir í gæsluvarðhald, þremenningarnir til 30. apríl en sá fjórði til 23. apríl. Rannsókn lögreglu beinist nú meðal annars að því hversu oft mennirnir hafa komið hingað áður, hvað þeir hafi þá haft fyrir stafni og hvort þeir eigi sér fleiri vitorðsmenn hér. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Sjá meira