Ragnar greiði Árna og Friðriki miskabætur 18. apríl 2012 11:38 Ragnar Önundarson.
Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness til þess að greiða þeim Árna Haukssyni og Friðriki Hallbirni Karlssyni, hvorum fyrir sig, 300 þúsund krónur í miskabætur fyrir að kalla þá í blaðagreinum í Morgunblaðinu á síðasta ári „féfletta". Þá skulu ummælin vera dauð og ómerk. Þá skal Ragnar greiða stefnendum 200 þúsund krónur til að kosta birtingu dómsins í opinuberu blaði. Að auki skal Ragnar greiða þeim Árna og Friðriki 600 þúsund krónur í málskostnað. Árni og Friðrik höfðu krafist þess að Ragnari yrði gerð refsing í málinu sem snýst um tvær greinar sem Ragnar skrifaði í Morgunblaðið, annars vegar í lok ágúst og hins vegar í lok september. Þar var fjallað um viðskipti tvímenninganna með Húsasmiðjuna og hlut í Högum og kallaði Ragnar mennina ítrekað „féfletta", með þeim rökum að þeir hefðu stundað eignatilfærslur en ekki fjárfestingar og þannig hagnast óeðlilega á kostnað hluthafa. Það eru þau ummæli sem krafist var ómerkingar á. Dómara þóttu rök stefnenda fyrir því að fá Ragnar dæmdan til refsingar „næsta knöpp" og voru ekki talin næg efni til að fallast á þá kröfu. Hinsvegar taldi dómarinn að í ummælum Ragnars fælist „ólögmæt meingerð gegn persónu og æru stefnenda" og því bæri hann miskabótaábyrgð. Að mati dómarans voru ummæli Ragnars í heild sinni „algerlega tilhæfulaus, óviðurkvæmileg og ærumeiðandi í því samhengi sem þau voru birt." Því sé niðurstaða dómsins sú að ummælin í heild sinni séu móðgandi og meiðandi fyrir stefndendur.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Fleiri fréttir Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Sjá meira