Icelandair styrkir landsliðin 18. apríl 2012 14:00 Frá undirritun samningsins í dag. mynd/icelandair
Í dag var undirritaður styrktarsamningur þess efnis að Icelandair gerðist aðalstyrktaraðili Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og um leið fjögurra sérsambanda innan þess, Körfuknattleikssambands Íslands, Handknattleikssambands Íslands, Körfuknattleikssambands Íslands og Golfsambands Íslands. Samingurinn er til þriggja ára og felur í sér að öll landslið Íslands í íþróttunum innan þessa fjögurra sambanda geta nýtt sér áætlunarflug Icelandair til yfir 30 áfangastaða. Í tilkynningu segir að þetta sé einn umfangsmesti styrktarsamningur í sögu íslenskrar íþróttahreyfingar. „Icelandair hefur um árabil átt gott samstarf við íþróttahreyfinguna og það er mjög ánægjulegt að geta staðfest áframhaldandi samstarf og stuðning með þessum hætti. Íþróttir gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki og eru auk þess mikill drifkraftur ferðalaga um allan heim. Íslendingar eiga margt afreksfólk á heimsmælikvarða sem veita landsmönnum mikla ánægju og eru öðrum þátttakendum hvatning til dáða", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í tilkynningu. „Gífurleg aukning hefur orðið á íþróttatengdum ferðalögum á undanförnum árum um allan heim. Á vegum Icelandair ferðast árlega tugir þúsunda farþega vegna íþrótta, bæði sem iðkendur og áhorfendur. Algengustu iðkendaferðir tengjast golfi og skíðaíþróttinni en þegar kemur að áhorfendaferðum er það fótboltinn í Englandi sem nýtur mestra vinsælda. Þá eru hér á landi árlega fjöldamargir leikir og fjölmenn alþjóðleg íþróttamót sem laða að þáttakendur alls staðar að úr heiminum," segir í tilkynningunni. „Okkar bestu íþróttamenn vekja sömuleiðis mikla athygli fjölmiðla og íþróttaáhugafólks úti í heimi og eru góð kynning á landinu, á sama hátt og fremsta tónlistarfólk okkar, en Icelandair hefur einmitt lagt áherslu á íþróttir og tónlist í styrktarstefnu sinni", segir Birkir. „Samningurinn sem undirritaður var í dag felur í sér víðtækt samstarf Icelandair og þessara íþróttasambanda og meðal annars að öll landslið Íslands í fótbolta, handbolta, körfubolta og golfi og keppnisfólk á vegum ÍSÍ í öllum aldursflokkum karla og kvenna geta nýtt sér áætlunarflug Icelandair til yfir 30 áfangastaða. „Það öfluga leiðakerfi sem Icelandair hefur byggt upp, með tíðum ferðum til allra helstu borga í Evrópu og Bandaríkjunum, er ein af forsendum þess að íþróttalífið hefur náð að blómstra á Íslandi. Okkar besta íþróttafólk eru heimsborgarar og landsliðsfólkið býr vítt og breytt um Evrópu. Án frábærra flugsamgangna væri þátttaka okkar t.d. í Evrópu- og heimsmeistaramótum algjörlega óhugsandi. Þess vegna fögnum við þessu samstarfi við Icelandair mjög", segir Ólafur Rafnsson, formaður Íþrótta og Ólympíusambands Íslands í tilkynningunni.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Sjá meira