Heiðagæs fjölgar við Kárahnjúka og ekkert sandfok frá Hálslóni 18. apríl 2012 19:23
Ekkert sandfok hefur enn orðið frá Hálslóni á þeim fimm árum, sem liðin eru frá því Kárahnjúkavirkjun hóf rekstur, og lónið olli ekki fækkun heiðagæsa, - þvert á móti hefur gæsum fjölgað. Lagarfljót er hins vegar orðið gruggugra. Georg Pálsson, stöðvarstjóri Kárahnjúkavirkjunar, segir reksturinn þessi fyrstu fimm ár hafa gengið mjög vel. Kárahnjúkastífla hafi til dæmis ekkert lekið. Menn hafi engar áhyggjur af henni og allt líti mjög vel út á Hálslónssvæðinu. Á vefnum sjálfbaerni.is er birtar skýrslur óháðra aðila um margvísleg áhrif virkjunarinnar. Óli Grétar Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar, segir að þau áhrif sem búist var við hafi að mestu leyti komið fram. Sum hafi reynst minni og sum geti orðið meiri. Ljóst er að Lagarfljót er orðið gruggugra, eins og spáð var í matskýrslu. Það séu varanleg neikvæð áhrif á lífríki Lagarfljóts, að sögn Óla Grétars, en á móti komi að lífríki í Jökulsá á Dal hafi eflst, þegar gruggið þar hafi minnkað á móti. Rof á árbökkum sem rekja má til virkjunarinar er talið takmarkað og staðbundið í fyrirliggjandi skýrslum og virðist rofhraði ekki hafa aukist, miðað við það sem áður var. Strönd Héraðsflóa er enn í jafnvægi en búist við að hún gangi til baka með tímanum. Matskýrsla gerði ráð fyrir 100-200 metra undanhaldi strandarinnar á 100 ára tímabili þannig að Óli Grétar segir að menn verði að bíða lengur til að sjá hvað þar gerist. Þótt Hálslón tæki hreiðursstæði af heiðagæs hefur henni ekki fækkað. Heiðagæs hefur almennt fjölgað á Kárahnjúkasvæðinu en Óli Grétar segir það ekki endilega vegna áhrifa virkjunarinnar heldur hafi almennt verið uppgangur í heiðagæsastofninum á landinu öllu. Ekki hefur reynst unnt að rekja tilflutning hreindýra til Kárahnjúkavirkjunar en Óli Grétar segir erfitt að meta hvaða áhrif til dæmis beitarálag á svæðum hafi líka á búsvæðaflutninga hreindýranna. Mikið landrými fór undir vatn og landslagið þar undir er horfið sjónum manna. Um 32 ferkílómetrar gróðurs fóru undir Hálslón en reynt er að bæta fyrir það með því að græða upp jafnmikið land annarsstaðar. En hvað með áhyggjur af sandfoki frá Hálslóni? Georg Pálsson stöðvarstjóri og Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri segja báðir að enginn sandur hafi ennþá fokið út úr lóninu en Landgræðslan vinnur með Landsvirkjun að fokvörnum. Sveinn segir að menn geti þó átt von á ofsaroki og að einhver sandur kynni að berast út úr lóninu. Allir séu þó að leggjast á eitt til að koma í veg fyrir að það gerist. Sveinn telur að með árunum dragi úr líkum á sandfoki og eftir 15-20 ár búist menn ekki við því að meiri hætta verði á sandburði út úr lóninu. Óli Grétar tekur fram að þættir eins og rofáhrif og gróðuráhrif komi fram á mjög löngum tíma þannig að ekki sé núna hægt að segja endanlega til um áhrif virkjunarinnar.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira