Bankastjóri segir veiðigjaldið kæfa útvegsfyrirtæki til lengri tíma Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. apríl 2012 20:00 Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Kvótafrumvörp sjávarútvegsráðherra setja fjárfestingar í sjávarútvegi í óvissu, að mati bankastjóra Arion banka. Hann segir frumvörpin „djarfa ákvörðun" hjá ráðherra. Fjárhæð veiðigjaldsins muni draga þrótt úr útvegsfyrirtækjum og kæfa þau til lengri tíma. Arion banki hefur mikilla hagsmuna að gæta í sjávarútvegi, enda eru mörg af stærstu útvegsfyrirtækjum landsins í viðskiptum við bankann. Þá heldur bankinn á rúmlega þriðjungshlut í HB Granda, einu öflugasta útvegsfyrirtæki á Íslandi sem hagnaðist um 37,3 milljónir evra, jafngildi 6,2 milljarða króna í fyrra. Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, var gestur okkar í nýjasta þættinum af Klinkinu. Höskuldur segir að gríðarlegur áhugi sé á HB Granda en óvissa um sjávarútveginn tefji söluna. Frumvarp sjávarútvegsráðherra um veiðigjald gerir ráð fyrir að 70 prósent af arðinum í greininni renni til ríkisins, en gildandi lög mæla fyrir um álagningu veiðigjalds, sem nemur 13,3 prósent af aflaverðmæti að frádregnum kostnaði. Höskuldur segir að færa megi rök fyrir því að skynsamlegra hefði verið að hækka veiðigjaldið aðeins í prósentum en að fara í mikla hækkun á því og ráðast í heildarendurskoðun á lagaumhverfi atvinnugreinarinnar. „Þetta er svolítið djarft finnst mér. Við höfum áhyggjur. Mörg þessara stærri sjávarútvegsfyrirtækja, þau munu geta staðið undir verulegum álögum, en þú náttúrulega dregur úr þeim þróttinn og kæfir þau til lengri tíma. Svo höfum við einnig áhyggjur af minni og meðalstórum fyrirtækjum sem hafa verið í skuldameðferð hjá okkur. Þau munu ekki standa undir þessu," segir Höskuldur um veiðigjald í nýju frumvarpi. Höskuldur segir að óvissa um sjávarútveginn hafi dregið þrótt úr atvinnugreininni. Fjárfesting hafi verið takmörkuð. „Þetta hefur staðið greininni fyrir þrifum í langan tíma. Og það fer að verða mjög aðkallandi fyrir þessa grein og þjóðfélagið að komast að niðurstöðu í þessum málum þannig að hægt sé að halda áfram," segir Höskuldur Ólafsson. Sjá má viðtalið við Höskuld í heild sinni hér. Þar er farið um víðan völl í málefnum Arion banka og horfurnar í efnahagsmálum almennt.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Sjá meira