Vöruskiptin hagstæð um 28 milljarða á 1. ársfjórðungi 30. apríl 2012 09:08
Fyrstu þrjá mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 156,1 milljarð króna en inn fyrir tæpa 128 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 28,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 30,3 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 2,2 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,6 milljarða króna og inn fyrir tæpa 49,3 milljarða króna. Vöruskiptin í mars voru því hagstæð um tæpa 5,4 milljarða króna. Í mars 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 14,7 milljarða króna á sama gengi. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 5,8 milljörðum eða 3,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,3% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 25,2% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski og fiskimjöli. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 8,0 milljörðum eða 6,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í eldsneyti.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent