Viðskipti innlent

Yfir 11% Íslendinga glíma við íþyngjandi húsnæðiskostnað

Árið 2011 vörðu 11,3% Íslendinga yfir 40% ráðstöfunartekna sinna í húsnæðiskostnað. Þeir sem voru líklegastir til að búa við verulega íþyngjandi húsnæðiskostnað voru ungt fólk, þeir sem bjuggu í óniðurgreiddu leiguhúsnæði, bjuggu einir eða voru í lægsta tekjufimmtungi.

Þetta kemur frá á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að húsnæðiskostnaður var rúmlega 18% ráðstöfunartekna hjá Íslendingum árið 2011. Leigjendur húsnæðis greiddu hærra hlutfall ráðstöfunartekna í húsnæðiskostnað en eigendur.

Hlutfall fólks sem glímdi við verulega íþyngjandi húsnæðiskostnað árið 2010 var lægra í 18 Evrópuríkjum en á Íslandi. Danir voru með hæsta hlutfallið en Kýpurbúar með það lægsta.

Íbúar 20 Evrópuþjóða greiða lægra hlutfall ráðstöfunartekna í húsnæðiskostnað en Íslendingar. Danir greiða hæsta hlutfallið en Maltverjar það lægsta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×