Ársreikningur borgarinnar: Lakari niðurstaða en áætlað var 30. apríl 2012 15:14 Jón Gnarr, borgarstjóri.
Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011 var kynntur í dag og kemur þar fram lakari niðurstaða an áætlað hafði verið. Í tilkynningu frá borginni segir að þessi verri staða skýrist af hærri lífeyrisskuldbindingum, gengistapi og verðbólgu. Hallinn hjá borginni, A- og B- hluta nam 4,7 milljörðum á árinu. "Meginástæður fyrir því má rekja til gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga upp á tæpa 4,4 milljarða sem var áætluð 600 milljónir, gengistaps og til aukins fjármagnskostnaðar vegna verðbólgu á árinu. Þessir óvissuþættir valda lakari niðurstöðu en áætlanir gerðu ráð fyrir en jákvæð tíðindi felast í því að aðgerðir Orkuveitu Reykjavíkur hafa skilað miklum árangri," segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. „Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 2.808 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði jákvæð um 66 mkr. Ástæðan er fyrst og fremst há gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga en hún nam tæpum 4,4 milljörðum en áætlun gerði ráð fyrir 600 mkr og aukinn fjármagnskostnaður vegna verðbólgu. Ekki var hægt að áætla lífeyrisskuldbindingarnar vegna óvissu í kjaraviðræðum," segir ennfremur. „Rekstrartekjur A-hluta voru 68.577 mkr eða 2.946 milljónir yfir áætlun sem skýrist af hærri skatttekjum. Rekstrargjöld voru 71.003 mkr. eða um 5.481 milljón yfir áætlun sem skýrist m.a. af hærri lífeyrisskuldbindingum," segir ennfremur. „Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var neikvæð um 4.675 mkr en árið 2010 var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 13.671 mkr. Þennan viðsnúning í rekstri er einkum að finna í fjármagnsliðnum sem reyndist neikvæður um 22.691 mkr en var jákvæður um 10.505 mkr árið 2010. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 11.459 mkr sem er um 512 mkr lakara en áætlun gerði ráð fyrir." Í tilkynningunni segir að engu að síður leiði samstæðuuppgjörið í ljós að hinar „víðtæku hagræðingaraðgerðir" sem Orkuveita Reykjavíkur greip til 2010 og 2011 hafi skilað mjög jákvæðum árangri. „Sjóðstreymi samstæðunnar hefur styrkst verulega á milli ára og er veltufé frá rekstri um 26,3 milljarðar eða 8,2 milljörðum hærra en árið 2010 og reyndist 24% af tekjum miðað við 19% árið 2010." „Eiginfjárhlutfall og skuldsetningarhlutfall samstæðunnar bera hins vegar enn mikil merki gengisfalls krónunnar, sérstaklega vegna erlendra skulda Orkuveitu Reykjavíkur. Rekstrartekjur A- og B-hluta voru 108.868 mkr eða um 3.367 milljónir umfram áætlun og rekstrargjöld voru 97.409 mkr. eða 3.879 milljónir umfram áætlun. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 22.691 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að þeir yrðu neikvæðir um 6.893 milljónir króna." „Þrátt fyrir þetta er A-hluti samstæðu Reykjavíkurborgar afar vel í stakk búinn til að mæta skuldbindingum sínum og sýnir niðurstaðan gott greiðsluhæfi. Eigið fé A-hluta nam tæpum 80 milljörðum króna í árslok en var 80,3 milljarðar í árslok 2010. Þá stendur borgin ágætlega að vígi þar sem handbært fé A-hluta nam um 11,8 milljörðum í árslok þrátt fyrir að A-hluti hafi lánað Orkuveitu Reykjavíkur 7,4 milljarða króna á árinu. Þá gekk allur almennur rekstur fagsviða borgarinnar eftir áætlunum," segir að lokum. „Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf."
Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Sjá meira