Nýtt fasteignafélag stofnað - FAST-1 Magnús Halldórsson skrifar 30. maí 2012 14:54 VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, stendur að stofnun nýs fasteignafélags ásamt lífeyrissjóðum og Trygginamiðstöðinni.
VÍB, sem er eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, Contra fasteignaráðgjöf, Gildi - lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Verzlunarmanna, Festa lífeyrissjóður, Almenni lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Tryggingamiðstöðin og Íslandsbanki standa að nýju fasteignafélagi, sem ber heitið FAST-1. Stærð félagsins við stofnun þess er rúmir 6 milljarðar króna en á næstu mánuðum verður fleiri fjárfestum boðin aðkoma að félaginu og er stefnt að því að stækka það upp í allt að 15 milljarða króna síðar á þessu ári, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. Í tilkynningunni segir enn fremur að mikil vinna hefur átt sér stað síðustu mánuði í tengslum við stofnun félagsins og undirbúnings fyrstu fjárfestinganna. „Fjárfestingarstefna FAST-1 er að fjárfesta í hágæða atvinnuhúsnæði með traustum langtíma leigutökum. Félagið hefur nýverið gengið frá kaupum á þremur fasteignum sem endurspegla fjárfestingarstefnu félagsins. Þessar fasteignir eru Skúlagata 21, Vegmúli 3 og Skútuvogur 1." VÍB og Contra fasteignaráðgjöf eru ráðgjafar félagsins í uppbyggingu eignasafna og rekstri, að því er segir í tilkynningu. Hluti af starfsemi félagsins verður einnig að gefa út greiningarefni um fasteignamarkaðinn. Í tilkynningu Íslandsbanka er haft eftir Stefáni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra VÍB, að mikill undirbúningur hafi farið í stofnun félagsins. „Við erum afar ánægð með að félagið sé orðið að veruleika en mikill undirbúningur liggur að baki stofnun þess. Við höfum átt frábært samstarf við Contra fasteignaráðgjöf og fagfjárfesta við að skapa þetta verkefni sem er það stærsta sinnar tegundar frá haustinu 2008. Stofnun öflugs aðila á sviði fjárfestinga í atvinnuhúsnæði er mikilvægt skref í að auka fagmennsku í þessum eignaflokki á Íslandi. Áherslan á greiningu og fræðslu er einnig í takt við þetta markmið og stefnu VÍB að leggja áherslu á fræðslu og faglega umræðu um mikilvæg mál á sviði eignastýringar, viðskipta og efnahagsmála."
Mest lesið Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sjá meira