Skammtímareddingar með lánum úr styrktarsjóðum Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. febrúar 2012 15:36 Jón Ásgeir Jóhannesson var aðaleigandi Baugs. mynd/ valli.
Í bókhaldi Baugs Group eru færð lán frá Hugverkasjóði, Sólarsjóði og Styrktarsjóði í árslok 2008 og í ársbyrjun 2009, samkvæmt upplýsingum frá Erlendi Gíslasyni, skiptastjóra Þrotabús Baugs. Fjallað er um lánveitingarnar í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli þrotabús Baugs gegn þrotabúi SPRON til riftunar á 100 milljóna króna greiðslu Baugs til SPRON á árinu 2008. Krafan um riftun er gerð á þeirri forsendu að Baugur hafi verið orðinn ógjaldfær þegar greiðslan var innt af hendi. Erlendur segir að greiðslurnar hafi ekki verið mjög háar. Sú hæsta hafi verið innan við 10 milljónir króna. „Þetta virðast vera inn- og útfærslur sem við sjáum. Þetta er skráð sem lán," segir Erlendur. Hann bætir því við að færslurnar úr sjóðunum hafi í öllum tilfellum verið greiddar til baka mjög fljótlega aftur. Ein þeirra hafi verið greidd samdægurs en aðrar nokkrum dögum seinna. „Þetta er greinilega einhver skammtímaredding og skilar sér aftur til baka," segir Erlendur. Þótt talið hafi verið að umrædd lán Baugs frá styrktarfélögunum hafi verið ólögmæt voru þau ekki tilkynnt til lögreglunnar. Erlendur segir að ástæðan sé sú að lánin hafi verið greidd til baka í öllum tilfellum. Þá hafi málið fyrst og fremst snert hagsmuni þessara sjóða sem hafa yfir sér stjórnir og það væri hlutverk þeirra stjórna að vekja athygli á málinu við lögreglu. „Við erum ekki með reglur sjóðanna og vitum ekki hvað þeir leyfa og hvað þeir leyfa ekki. En við töldum ólíklegt að svona lánveitingar væru innan marka þess sem þeir áttu að vera að stunda," segir Erlendur. Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformaður og helsti eigandi Baugs, segir að dómurinn komist að þeirri niðurstöðu að Baugur hafi verið gjaldfært þvert á það sem skiptastjóri Baugs haldi fram. Varðandi það að félagið hafi tekið fé úr sjóðum segir Jón Ásgeir að Baugur hafi lagt út ákveðinn kostnað fyrir Sólarsjóðinn við stofnun. Nefnir hann meðal annars hönnun á heimasíðu. Það hafi verið gert upp á milli félagsins og sjóðsins. „Sjóðurinn var stofnaður með 100 milljóna framlagi frá eiginkonu minni og mér. Engin rýrnun hefur orðið á því fé. Þvert á móti hefur sjóðurinn vaxið og dafnað," segir Jón Ásgeir og bendir á ársreikning frá árinu 2010. Þar kemur fram að Sólarsjóður hafi átt 125 milljónir í lok árs. „Sjóðurinn mun úthluta á næstu árum í samræmi við samþykktir um að styrkja foreldra langveikra barna. Varðandi hugverkasjóð þá er ljóst að hann skuldaði Baugi en ekki tónlistarmönnum þeir fengu alla sína peninga sem þeir höfðu rétt á," segir Jón Ásgeir.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira