Íslendingar högnuðust örlítið á Liborvaxtasvindlinu 27. júlí 2012 06:19
Allar líkur eru á að Íslendingar hafi frekar hagnast örlítið en tapað á Libor vaxtasvindlinu sem nú er til rannsóknar í Bretlandi og víðar. Greining Arion banka fer í saumana á Libor hneykslinu í Markaðspunktum sínum. Svindlið með þessa vexti fólst í tvennu, að reyna að hækka vextina og auka þannig eigin gróða eða reyna að lækka vextina og sýna þannig traust á bankanum því lántökukostnaður hans væri svo lágur. Seinna atriðið var bönkunum efst í huga í aðdraganda fjármálakreppunnar árið 2007 og þar eftir og þá eru líkur á að svindlið hafi lækkað liborvextina um tugi punkta eða allt að hálfu prósentustigi. Erlend lán sem Íslendingar tóku á árunum fyrir fall íslenska bankakerfisins voru iðulega með breytilegum Libor vöxtum að viðbættu álagi. Í Markaðspunktunum segir að svindlið til að halda Libor vöxtunum uppi hafi haft nær engin áhrif hérlendis. En svindlið við að halda Libor vöxtum niðri hafi verið til einhverra takmarkaðra hagsbóta fyrir íslensk heimili og fyrirtæki, þótt áhrif þess blikni í samanburði við gengisfallið sem varð á árabilinu 2007-2009 og varð til þess að greiðslubyrði lánanna hækkaði mikið í krónum talið. Íslenskar fjármálastofnanir, sem áttu stór útlánasöfn í erlendri mynt, hefðu hins vegar getað orðið af stærri upphæðum vegna þessa, ef ekki væri fyrir þá staðreynd að margar þeirra fjármögnuðu sig með skuldabréfaútgáfu erlendis á kjörum tengdum Libor. Áhrifin ættu því að hafa nettast út að miklu leyti í reikningum þeirra, að því er segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira