Viðskipti innlent

Atvinnuleysið mældist í 5,2% í júní

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í júní s.l. að jafnaði 192.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 182.400 starfandi og 10.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 85,8%, hlutfall starfandi 81,3% og atvinnuleysi var 5,2%.

Á vefsíðu Hagstofunnar segir að atvinnuleysi hefur aukist um 0,6 prósentustig frá því í júní 2011 en þá var atvinnuleysi 4,7%.

Á öðrum ársfjórðungi 2012 mældist atvinnuþátttaka 82,8% að jafnaði. Hlutfall starfandi var 76,9% og atvinnuleysi 7,2%. Starfandi fjölgaði um 2.200 manns og atvinnulausum fækkaði um 2.500 frá öðrum ársfjórðungi 2011.

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.

Árstíðaleiðréttur fjöldi atvinnulausra í júní 2012 var 11.100 eða 6% en var 9.600 eða 5,4% í maí. Fjöldi starfandi var 171.700 í júní 2012 eða 76,9% en var 170.200 í maí eða 76,6%. Þrátt fyrir að árstíðaleiðrétt atvinnuleysi er hærra nú en á sama tíma fyrir ári sýnir leitni árstíðaleiðréttingar að enn dregur nokkuð úr atvinnuleysi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×