4 kílómetra lögn að Reykholti JHH skrifar 27. júlí 2012 14:58
Framkvæmdir við nýja vatnsveitu fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki í Borgarfirði verða boðnar út nú um helgina. Eftir ítarlega leit að fullnægjandi vatnsbóli fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki, hefur verið ákveðið að virkja vatnsból við mynni Rauðsgils og leggja 4,4 kílómetra langa aðveitulögn milli Rauðsgils og Reykholts. Þá verður byggð dælu- og stjórnstöð í grennd við vatnstökustaðinn. Öll leyfi vegna framkvæmdarinnar liggja fyrir og verkútboð vegna lagnar aðveitulagnarinnar verður auglýst nú um helgina, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í byrjun september og verði lokið um næstu áramót. Í þurrkatíðinni nú í sumar hefur þurft að aka vatni í tankbílum í Reykholt. Eftir að sýni reyndust ófullnægjandi í einu núverandi vatnsbóla hafa þeir flutningar verið auknir enn frekar. Nýja vatnsbólið á eitt og sér að geta að geta fullnægt þörfum viðskiptavina í Reykholti og á Kleppjárnsreykjum. Vatnsveitur þessara tveggja byggðarkjarna voru samtengdar fyrir nokkrum árum og hafa Reykhyltingar notið góðs af því. Við Rauðsgil verður byggt lítið hús yfir dælu og stjórnbúnað. Starfsmenn OR munu annast framkvæmdir í Rauðsgili auk tenginga við aðveituæðina. Lagning hennar verður hinsvegar í höndum verktaka.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Sjá meira