Fyrirsjáanlegt að afkoma búanna skerðist 1. febrúar 2012 06:00 Skýrsla Hagfræðistofnunar gerir ráð fyrir að afurðaverð til svínabænda muni lækka og framleiðsla dragist saman, komi til ESB-aðildar.
Viðbúið er að afkoma íslenskra svínabænda verði lakari, komi til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Svínaræktarfélag Íslands, um stöðu og horfur í svínarækt. Skýrslan gerir ráð fyrir að afurðaverð til bænda gæti orðið um 39 prósentum lægra eftir aðild, að undanskildum styrkjum og mótvægisaðgerðum, og mikill samdráttur geti orðið á framleiðslu, vegna aukins innflutnings á svínaafurðum. Á móti kemur að fjármagnskostnaður svínaframleiðenda gæti lækkað um 37,5 prósent til lengri tíma litið. Miðað við forsendur skýrslunnar er gert ráð fyrir að samdráttur á afkomu svínaframleiðenda geti numið á bilinu 600 til 1.000 milljónum króna og miðað við reynslu Finna gæti kostnaður ríkissjóðs af því verið á bilinu 400 til 750 milljónir árlega. „Það er engin búgrein á Íslandi sem getur reiknað með að koma betur út, fjárhagslega eftir aðild," segir Daði Már Kristófersson, annar höfunda skýrslunnar, „en svínaræktin stendur ekki verst." Daði kveðst ekki telja að svínarækt myndi leggjast af undir slíkum aðstæðum en án stuðnings yrði staðan erfið. Hörður Harðarson, formaður Svínaræktunarfélagsins, segir að skýrslan sé gerð til að skýra stöðu greinarinnar og hvað þurfi til að hún geti þrifist við breyttar aðstæður. „Það má segja að boltinn sé nú hjá stjórnvöldum til að vega og meta hvaða hlutverki þessi grein á að gegna hér á landi til lengri tíma." - þj
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira