Bréfdúfur í kappflugi landshorna á milli 16. apríl 2012 10:00 Eiríkur Ingi segir mikilvægt að þjálfa dúfurnar fyrir keppni. Það hefur hann lært með að lesa sér til á netinu og í bókum um efnið.fréttablaðið/vilhelm „
Þetta er bara eins og hvert annað áhugamál,“ segir Eiríkur Ingi Kristinsson, bréfdúfnabóndi í Mosfellsbæ. „Ég var í þessu sem ungur strákur og byrjaði aftur núna á fertugsaldri.“ Hann segist hafa haft aðstöðu í garðinum heima hjá sér sem barn. „Það var annar hver krakki með dúfur fyrir svona 30 árum,“ bendir hann á. Eiríkur segir áhugamál sitt ekki vera sérstaklega dýrt. „Ég mundi segja að þetta væri ódýrara hobbí en golf eða veiði. Það fer þó mikið eftir því hvað þú leggur í þetta.“ Félagskapur bréfdúfnabónda er vaxandi á Íslandi en þetta er ekki aðeins áhugamál heldur einnig keppnisíþrótt. „Keppnistímabilið hefst í enda maí og það er keppt hverja helgi alveg fram í ágúst.“ Keppnin felst ekki í því að senda bréf heldur er dúfunum ekið út á land þar sem þær eru ræstar af stað heim til sín aftur. „Við reynum að hafa þær eins fljótar og hægt er heim aftur. Maður þarf að þjálfa þær sérstaklega fyrir svona keppnir,“ segir Eiríkur og bætir við að um það bil 15 manns taki þátt í hverri keppni. Fyrstu keppnirnar í ár verða frá Seljalandsfossi undir Eyjafjöllum. Lengstu keppnirnar verða frá Höfn í Hornafirði. „Flugtíminn fer mikið eftir veðri og vindum. Við kepptum í fyrra frá Grímsstöðum á Fjöllum og þá voru fuglarnir kannski fjóra klukkutíma í bæinn,“ segir Eiríkur Ingi. „Dúfurnar hafa alveg rosalega eiginleika.“ Eiríkur bendir á að um leið og þeim er sleppt fljúga þeir rakleiðis heim. Fuglarnir komast þó ekki alltaf heim. „Ef þeir eru of lengi á leiðinni þá gefast þeir bara upp. Flestir hafa ekki vit á því að setjast niður og fá sér að éta.“ Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi Bréfdúfnafélags Íslands á vefsvæði félagsins brefdufur.is. birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Sjá meira