Tæplega fimm milljarða skuldir afskrifaðar hjá móðurfélagi Odda Magnús Halldórsson skrifar 16. apríl 2012 10:44 Þorgeir Baldursson, oft kenndur við Odda.
Tæplega fimm milljarða króna skuldir móðurfélags Odda, eignarhaldsfélagsins Kvosar, hafa verið afskrifaðar að því er greint er frá í DV í dag. Þorgeir Baldursson, fyrrverandi stjórnarmaður Landsbankans sem oft er kenndur við prentsmiðjuna Odda, var skráður stærsti eigandi Kvosar með ríflega fjórðungshlut, áður en kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Gömlu eigendur Kvosar, með Þorgeir innanborðs, hafa keypt Kvos á 500 milljónir króna eftir um fimm milljarða afskriftir, samkvæmt DV. Eftir þeirri aðferðafræði hefur oft verið farið við endurskipulagningu fyrirtækja að gömlu eigendur og stjórnendur fyrirtækjanna, geti haldið fyrirtækjunum áfram sem eigendur með því að leggja fram nýtt eigið fé, og fá skuldir umfram eignir afskrifaðar. Landsbankinn og Arion banki gefa eftir skuldirnar, samkvæmt fréttum DV. Landsbankinn afskrifaði tæplega þrjá milljarða og Arion banki ríflega tvo milljarða, samkvæmt skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte sem DV vitnar til. Félagið var skuldum vafið eftir hrun fjármálakerfisins og krónunnar, og skuldaði í lok árs 2009 tæplega níu milljarða króna. Stærsti eigandi Kvosar hefur verið Þorgeir Baldursson, en hann er forstjóri félagsins. Baldur, sonur Þorgeirs, er framkvæmdastjóri félagsins, að því er greint er frá í DV. Á þriðja hundrað starfsmenn vinna hjá Odda samstæðunni, það er móðurfélaginu Kvos og dótturfélögum, en félagið er með 37 prósenta markaðshlutdeild á prentmarkaðnum á Íslandi.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira