Eftirlíking af byssu úr Star Wars gerð upptæk í tollinum Boði Logason skrifar 16. apríl 2012 15:24 Áhugamaður um Star Wars með eftirlíkingu af geislasverði í versluninni Nexus á Hverfisgötu. Þau hafa komist í gegnum tollinn. mynd/valli „
Þetta var nákvæm eftirlíking og það hafa greinilega einhverjir rauðir fánar farið á loft hjá þeim í tollinum," segir Sveinn Ólafur Lárusson, starfsmaður í versluninni Nexus á Hverfisgötu. Tollverðir gerðu nákvæma eftirlíkingu af byssu upptæka þegar hún kom með sendingu til landsins á dögunum. Eftirlíkingin þótti of lík alvöru byssu. Byssan sem um ræðir er eftirlíking af byssu Han Solo úr Star Wars-myndunum en einn starfsmaðurinn pantaði hana með stórri sendingu sem kom til landsins á dögunum. En þeir fengu tilkynningu um að byssunni yrði fargað og því fær eigandinn hana ekki í sínar hendur. „Við ætlum ekki að gera neitt mál úr þessu, við pöntum oft svona byssur og við vorum í raun að vona að þetta kæmist í gegn. En okkur fannst þetta svolítið skrítið og leiðinlegt því byssan er ekki fjöldaframleidd," segir Sveinn Ólafur.Han Solo með byssuna sína í einni af Star Wars-myndunum. Eftirlíking af þessari byssu var gerð upptæk í tollinum.Hann segir að flestar byssurnar sem eru pantaðar til landsins séu flokkaðar sem leikfang hjá tollinum en það hafi því miður ekki verið í þessu tilviki. „Þetta er fyrsta skiptið sem þetta gerist, en ætli það hafi verið vegna þess hversu nákvæm eftirlíkingin var. Við höfum oft fengið byssur með ljósum og hljóðum," segir hann en starfsmaðurinn sem pantaði byssuna er mikill áhugamaður um Star Wars. „Við erum til dæmis með mjög flottar eftirlíking af geislasverðum, það hefur ekki verið neitt vandamál." „Við pöntum ekki inn sverð þó að þau séu mjög vinsæl á þeim sem síðum sem við erum að versla við. En við höfum alveg fengið byssur úr Star Trek, Star Wars, Aliens, Predator og Terminator myndunum. Það hefur ekki verið neitt mál." Starfsmenn fyrirtækisins sjá oft um að panta vörur fyrir viðskiptavini. „Við pöntum oft fyrir fólk og yfirleitt er það verðið sem verður til þess að fólk hættir við að kaupa en stundum segjum við þeim að það gæti farið svo tollurinn hleypi þessu ekki í gegn, og þannig var það í þessu tilfelli." Staðan núna er sú að byssan er í höndum tollvarða en Sveini Ólafi hefur verið tjáð að henni verði fargað. „Ég veit ekki hvernig þessu er háttað hjá þeim, en við fáum hana allavega ekki. Það verður bara að hafa það," segir hann spakur að lokum.
Mest lesið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Fleiri fréttir Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Sjá meira