Krefjast Norðfjarðarganga án tafar Kristján Már Unnarsson skrifar 16. apríl 2012 00:00
Íbúar Fjarðabyggðar hafa hert baráttu sína fyrir Norðfjarðargöngum og í dag og næstu daga verður gengið í hvert hús í þessu stærsta sveitarfélagi Austurlands til að safna áskorunum til Alþingis og ríkisstjórnar um að hefja framkvæmdir nú þegar. Aka þarf um 630 metra háan fjallveg til að komast milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, þrátt fyrir gömlu Oddsskarðsgöngin, sem grafin voru fyrir hartnær fjörutíu árum í gegnum efsta haftið. Ný sjö kílómetra jarðgöng hafa lengi verið í bígerð en núverandi ríkisstjórn hefur frestað verkefninu. Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, segir menn hafa beðið mjög lengi eftir þessum göngum. Fyrst hafi þau átt að vera tilbúin 2006, svo 2009 og síðan 2011 en nú sé talað um að fara í framkvæmdir á árunum 2015 til 2018. „Við bara sættum okkur ekki við það," segir Jens Garðar um þessa frestun framkvæmda. Slys í febrúar þegar starfsmannarúta Fjarðaáls fór þrjár veltur í brattlenti í Oddsskarði virðist hafa fyllt mælinn, en forstjóri Fjarðaáls, Janne Sigurðsson, segir það hafa verið mjög alvarlegt. Það sé engan veginn hægt að bíða til ársins 2018 og menn verði að fara strax í verkefnið. Bæjarstjóri Fjarðabyggðar ásamt bæjarfulltrúum fara fremst í flokki þeirra sem ganga á milli húsa til að safna áskorunum til stjórnvalda. Þeir telja íbúa Fjarðabyggðar leggja sitt af mörkum inn í þjóðarbúið til að eiga inni fyrir göngunum. Jens Garðar minnir á að 4.700 manns búi í Fjarðabyggð og að 25-30% af vöruútflutningi þjóðarinnar fari um hafnir sveitarfélagsins.
Mest lesið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Fleiri fréttir Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Sjá meira