Þingeyingar bíða enn eftir stórframkvæmdunum 16. apríl 2012 20:15
Forystumenn Þingeyinga kalla eftir því að stjórnvöld sýni meiri festu í að koma stóriðjuframkvæmdum í gang. Formaður bæjarráðs Norðurþings segir skort á svörum frá ríkisstjórn tefja viðræður um kísilver. Tvö og hálft ár eru liðin frá því ríkisstjórnin hafnaði að endurnýja viljayfirlýsingu við Alcoa um álver á Bakka, í því skyni að leita fleiri valkosta, og eitt og hálft ár er frá því iðnaðarráðherra sagði Þingeyingum að fara að búa samfélagið undir stórfellda atvinnuuppbyggingu. Þeir hafa síðan beðið og bíða enn og var Jón Helgi Björnsson, formaður bæjarráðs Norðurþings, spurður í viðtali í fréttum Stöðvar 2 hvort þeir væru komnir í biðflokk. Hann segir erfitt fyrir samfélög að bíða lengi eftir stórframkvæmdum en kveðst þó gera sér vonir um að þetta muni hafast á endanum. Vonir um að samningar um kísilver á Bakka yrðu undirritaðir snemma á þessu ári hafa ekki ræst. Meðal þess sem truflar er að kísilver er mun minna en álver og er því ekki talið geta staðið í sama mæli undir margvíslegum kostnaði við aðstöðusköpun. Jón Helgi segir skorta svör frá ríkisvaldinu um hvernig það ætli að koma að gerð vegtenginga að Bakka og hafnaruppbyggingu og þetta stöðvi það að hægt sé að halda áfram viðræðum við kísilfyrirtækin. Stöð 2 greindi frá því fyrir tveimur mánuðum að svissneska álfyrirtækið Klesch hefði óskað eftir viðræðum um að reisa meðalstórt álver á Bakka. Jón Helgi segir heimamenn ætíð hafa litið á álver sem spennandi kost en sama gildi ekki um ríkisstjórnina. Hann kveðst ekki hafa orðið var við að neinar viðræður hafi farið af stað við álfyrirtækið og hvetur til þess að menn horfi á alla þætti með jákvæðum hætti. Þá kallar hann eftir því að stjórnvöld sýni meiri festu í þessum verkefnum og beiti sér harðar í að koma þeim í gang.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira