Viðskipti innlent

Vísitala íbúðaverðs í borginni lækkar

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 332.2 stig í febrúar s.l. og lækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,8%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 3,2% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,8%. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×