Fjármálaeftirlitið vill slíta starfsemi Sögu Þórður Snær Júlíusson skrifar 21. mars 2012 10:30 Saga Capital flutti starfsemi sína í Reykjavík í Turninn við Höfðatorg síðla árs 2010. Fjármálaeftirlitið flutti starfsemi sína þangað í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur höfðað mál á hendur Sögu Capital til að reyna að slíta félaginu. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands eystra síðastliðinn fimmtudag. Samkvæmt upplýsingum frá FME tengist málshöfðunin ákvörðun þess að afturkalla starfsleyfi Sögu en Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti þá ákvörðun 5. mars síðastliðinn. Hersir Sigurgeirsson, forstjóri Sögu, segir að þeirri niðurstöðu hafi verið áfrýjað til Hæstaréttar. Hann telur kröfu FME um að setja félagið í slitameðferð vera eins og að framfylgja dauðadómi á meðan hann er enn í áfrýjun. Saga Capital tapaði 1,8 milljörðum króna á árinu 2010 og samtals 8,3 milljörðum króna á árunum 2008-2010. Tekjur bankans á árinu 2010, 382 milljónir króna, drógust saman um 250% og nægðu ekki fyrir launum starfsmanna, hvað þá öðrum rekstrarkostnaði. Á sama tíma fjölgaði starfsmönnum Sögu úr 32 í 37 og bankinn flutti starfsstöð sína í Turninn við Höfðatorg. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Sögu, sagði upp starfi sínu í febrúar í fyrra og var Hersir ráðinn í hans stað. Í kjölfarið var ráðist í víðfeðmar aðgerðir til að skera starfsemi Sögu niður. Starfsmönnum var fækkað hratt á fyrstu mánuðum ársins og í lok ágúst var fyrirtækjaráðgjöf Sögu seld til MP banka og þorri annarra starfsmanna Sögu fékk uppsagnarbréf. Eftir þessar breytingar voru einungis tveir starfsmenn eftir hjá Sögu. FME afturkallaði starfsleyfi Sögu sem fjárfestingabanka í október 2011 þar sem hann fullnægði ekki ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki um eigið fé. Í kjölfarið var nafni hans breytt úr Sögu Fjárfestingabanka aftur í Sögu Capital. Félagið mátti enn fremur ekki lengur kalla sig banka. Forsvarsmenn Sögu vildu að sú ákvörðun yrði ógilt og höfðuðu mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Kröfu fyrirtækisins var hafnað í byrjun mars og hefur Saga áfrýjað þeirri niðurstöðu til Hæstaréttar. FME hefur samt sem áður höfðað mál á hendur Sögu og vill slíta starfsemi fyrirtækisins. Að sögn Hersis hefur áfrýjun Sögu í ógildingarmálinu fengið flýtimeðferð fyrir Hæstarétti og er búist við niðurstöðu í lok maí. Hann segir það þó ekki breyta því að málalok í slitamáli FME gætu legið fyrir áður en sú niðurstaða lægi fyrir. „FME hefur gert kröfu um að félagið verði tekið til slitameðferðar. Eftirlitið vill meina að því beri að gera það eftir að starfsleyfið var afturkallað. Mér fyndist það mjög undarleg niðurstaða, en það er krafa FME. Þetta er eins og að framfylgja dauðadómi á meðan hann er í áfrýjun. Slitameðferð er nokkuð endanleg.“ Núverandi starfsemi félagsins felst fyrst og fremst í úrvinnslu á eignasafni Sögu og uppgjöri við kröfuhafa þess. Að sögn Hersis er þó vilji á meðal hluthafa Sögu að hefja sambærilega starfsemi og var í fyrirtækinu áður fyrr en í smækkaðri mynd. „Við gerum það ekki án starfsleyfis. Ef það kemur inn slitastjóri þá tekur hann völd hluthafafundar og stjórnar. Hlutverk hans er þá að innkalla kröfur og tryggja að þær séu réttar.“ thordur@frettabladid.is
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira